Dagsetning Tilvísun
7. október 1996 753/96
Virðisaukaskattur af einblöðungum
Vísað er til bréfs yðar, dags. 12. ágúst sl. og samtals við yður 17. september sl., þar sem óskað er eftir því að ríkisskattstjóri endurskoði fyrri túlkun sína á því hvort að ritið Í teljist ekki tímarit í skilningi virðisaukaskattslaga.
Í bréfi yðar segir að ritið komi út hálfsmánaðarlega allt árið. Í fyrstu kom það út í bókarformi, en síðustu árin sem blöðungar. Hver sending af ritinu samanstendur af nokkrum blöðungum, t.d. er 15. tbl. sem gefið var út 9. september 1996 í formi fimm blaða eða blöðunga. Áskrifendur fá í upphafi möppu til þess að safna blöðunum í.
Hugtakið „tímarit“ í skilningi 5. tl. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er hvers konar útgáfa rita, að jafnaði með efni eftir fleiri en einn höfund, önnur en útgáfa dagblaða og landsmála- og héraðsfréttablaða, sem uppfyllir eftirtalin skilyrði:
a. Kemur út reglulega og a.m.k. tvisvar á ári.
b. Útgáfan er liður í ótímabundinni röð, þ.e. gert er ráð fyrir útgáfu um ófyrirsjáanlega framtíð.
c. Einstök hefti bera sama heiti og eru númeruð.
d. Útgáfan er seld á fyrirfram ákveðnu verði eða dreift til félagsmanna gegn greiðslu félagsgjalds.
Eftirtalinn prentvarningur er hvorki talinn vera tímarit eða bók í skilningi 14. gr. virðisaukaskattslaga og skulu þeir sem í atvinnuskyni selja eða afhenda slíka vöru innheimta og skila 24,5% virðisaukaskatti af andvirði hennar:
a. Rit til útfyllingar, innsetningar, límingar, heftunar eða til að rífa af eða úr. Má nefna sem dæmi eyðublöð, litabækur, stílabækur og reikningshefti.
b. Smáprent, svo sem auglýsinga- og kynningarbæklingar, fréttabréf, dreifibréf og aðrir slíkir bæklingar.
c. Leikskrár og sýningarskrár.
d. Almanök, dagbækur og önnur regluleg útgáfa rita sem hafa að geyma dagatöl, nema þegar dagatal er minni hluti víðtækrar handbókar en þá er um 14% virðisaukaskatt að ræða.
e. Uppdrættir og kort, einnig í bókarformi. Þó tekur lægri prósentan (14%) til atlasa sem hafa að geyma tematískar upplýsingar auk korta.
f. Rit, sem að meginefni eru skrár eða listar en ekki samfelldur texti, svo sem símaskrár, heimilisfangaskrár, fyrirtækjaskrár, vinningaskrár, verðskrár, leiðabækur um áætlunarferðir, skrár yfir sýningarhluti, fasteignir, rekstrarfjármuni, vörubirgðir og annað lausafé.
g. Námsvísar og kennsluáætlanir skóla.
h. Sérútgáfur laga og reglna, svo og staðlar, leiðbeiningar og tilkynningar frá opinberum aðilum. Lægri prósentan tekur þó til samstæðna tveggja eða fleiri slíkra rita sem bundin eru saman í eitt hefti.
Af framanrituðu er ljóst að við mat á því hvað teljist tímarit í skilningi ákvæðisins er litið bæði til efnis og forms hins prentaða máls. Ljóst er að umrædd útgáfa er í formi stakra blaða til innsetningar í möppur og félli þar af leiðandi undir a) lið hér að framan (rit til innsetningar) og bæri að innheimta 24,5% virðisaukaskatt af útgáfunni. Þrátt fyrir þetta uppfyllir útgáfan öll önnur skilyrði um form, efni og varanleika tímarita almennt og verður af þeirri ástæðu að telja að form útgáfunnar komi ekki í veg fyrir að hún teljist vera tímarit í skilningi ákvæðisins.
Samkvæmt framansögðu er það álit ríkisskattstjóra að Í, gefið út í formi einblöðungs eða einblöðunga, sé tímarit í skilningi virðisaukaskattslaga og ber því að innheimta 14% virðisaukaskatt af sölu þess.
Með hliðsjón af framansögðu er bréf ríkisskattstjóra dags. 26. ágúst, tilv. 749/96, til yðar hér með afturkallað.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Vala Valtýsdóttir.