Dagsetning Tilvísun
28. apríl 1992 405/92
Virðisaukaskattur af notkun rafmagnsnuddtækis.
Vísað er til bréfs yðar, mótt. 27. apríl sl., þar sem óskað er upplýsinga um meðferð virðisaukaskatts vegna notkunar á Trimform meðferðartæki sem sagt er vera rafmagnsnuddtæki við vöðvabólgu o. fl.
Til svars erindinu skal tekið fram að nuddþjónusta er skattskyld til virðisaukaskatts samkvæmt meginreglu 2. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt, en þar segir að skattskyldan nái til allrar vinnu og þjónustu, hverju nafni sem hún nefnist, sem ekki er sérstaklega undanþegin. Nuddþjónusta er einnig skattskyld þótt hún sé veitt í tengslum við starfsemi heilsuræktarstofu. Ekki skiptir máli um skattskyldu þótt rafmagnstæki séu notuð við þessa starfsemi.
Þjónusta löggiltra sjúkranuddara er þó undanþegin virðisaukaskatti ef fyrir liggur tilvísun frá lækni og/eða hluti þjónustunnar er greiddur af Tryggingarstofnun ríkisins.
Virðingarfyllst,
f:h. ríkisskattstjóra,
Ólafur Ólafsson.
Hjál.: Bréf RSK 52/90.