Dagsetning                       Tilvísun
2. desember 1993                            587/93

 

Virðisaukaskattsskylda opinberrar stofnunar

Vísað er til bréfs yðar, dags. 22. september 1993 þar sem álits ríkisskattstjóra er leitað á virðisaukaskattsskyldu þvottahúss fangelsanna. Í bréfi yðar kemur fram að í þvottahúsinu er þveginn þvottur fyrir öll fangelsin á höfuðborgarsvæðinu og fangelsið að Litla Hrauni. Fangar sjá um vinnuna undir leiðsögn fangavarðar.

Gjaldtaka ríkisstofnunar vegna starfsemi sem hún hefur með höndum í krafti opinbers valds t.d. eftirlit með vörum, tækjum eða framleiðslu, hefur ekki í för með sér skyldu til að innheimta virðisaukaskatt, enda er þá ekki á valdi annars en viðkomandi stofnunar að veita sambærilega þjónustu með sömu réttaráhrifum.

Séu opinberir aðilar á hinn bóginn í samkeppni við atvinnufyrirtæki þá er meginreglan sú að þeir séu skráningarskyldir (virðisaukaskattsskyldir). Hvað varðar starfsemi þvottahússins þá er ljóst að mörg fyrirtæki bjóða upp á sambærilega þjónustu við þá sem þvottahús fangelsanna býður upp á.

Við mat á því hvort sú þjónusta sem þvottahús fangelsanna býður upp á teljist sambærileg við við starfsemi atvinnufyrirtækja og þar af leiðandi skráningarskyld, er aðallega miðað við hvort tilgangur starfseminnar sé að skila hagnaði af rekstri. Skráningarskylda er ekki talin vera fyrir hendi ef tekjur af starfseminni eru alltaf eða nær alltaf lægri en kostnaður við aðföng sem keypt eru með virðisaukaskatti til starfseminnar.

Ríkisskattstjóri telur miðað við fram komnar upplýsingar að um sé að ræða virðisaukaskattsskylda starfsemi. Þess má geta að skv. 4. mgr. 16. gr. virðisaukaskattslaga mega ríki, bæjar- og sveitafélög og stofnanir þeirra einungis telja til innskatts virðisaukaskatt af þeim aðföngum sem eingöngu varða sölu á skattskyldri vöru eða þjónustu, sbr. 4. tölul. 1. mgr. 3. gr. virðisaukaskattslaga.

 

Virðingarfyllst

f.h. ríkisskattstjóra

Grétar Jónasson