Dagsetning Tilvísun
6. desember 1993 588/93
Virðisaukaskattur af útgáfustarfsemi
Vísað er til bréfs yðar, dags. 25. ágúst 1993, þar sem óskað er upplýsinga um hvort V, bók upp á 144 bls. og 32 meðfylgjandi spil, teljist vera vara í 14% skattþrepi eða 24,5% skattþrepi.
Til svars bréfi yðar skal tekið fram að ef bók á íslensku er seld með annarri vöru sem ein vöruheild, og sú vara sem fylgir með bókinni er í 24,5% skattþrepi, ber að innheimta 24,5% virðisaukaskatt af heildarsöluverði eða heildarandvirði hins selda, einnig þótt 14% skatthlutfall gæti tekið til bókarinnar ef hún væri seld sérstaklega.
Það telst vera vöruheild ef kaupandi hefur ekki frjálst val um að kaupa einingarnar hvora í sínu lagi eða ef hann hefur ekki full not af einni einingu án annarrar. Sem dæmi um þetta má nefna:
* Leiðbeiningarit með tæki.
* Blað, tímarit eða bók á íslensku er seld með hljómplötu, myndbandssnældu, leikfangi eða spilum.
Með vísan til framanritaðs telur embætti ríkisskattstjóra að V beri 24,5% virðisaukaskatt.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra
Árni Harðarson.