Dagsetning Tilvísun
23. desember 1993 594/93
Virðisaukaskattur á íþróttafélög vegna sölu á auglýsingum.
Vísað er til bréfs yðar, dags. 20. júlí 1993, þar sem leitað er upplýsinga um virðisaukaskattsskyldu íþróttafélaga vegna sölu auglýsinga.
Í bréfi yðar kemur fram að þér teljið að íþróttafélög séu ekki virðisaukaskattsskyld vegna sölu auglýsinga, þar sem þau eru ekki rekin í hagnaðarskyni. Þá kemur fram í bréfi yðar að íþróttafélögin séu í eðli sínu rekin sem ein heild og ekki sé hægt að taka út ákveðna þætti í starfsemi þeirra eins og t.a.m. auglýsingasölu í íþróttahús eða á velli. Stærsti hluti starfseminnar hafi eingöngu útgjöld í för með sér og þess vegna verði að leita annarra leiða til tekjuöflunar fyrir þá þætti. Fram kemur í bréfi yðar að þér teljið að þegar ákvarðað er um virðisaukaskattsskyldu einstakra þátta í starfsemi félags, verði að skoða þau markmið sem reksturinn í heild sinni stefnir að, en ekki einblína á einstaka þætti hans.
Sala á auglýsingum er virðisaukaskattsskyld starfsemi. Ef þessi starfsemi telst í heild sinni vera í atvinnuskyni, ber að innheimta og skila virðisaukaskatti af allri auglýsingasölu íþróttafélags, svo sem sölu á auglýsingastæðum, sölu á auglýsingum á keppnisbúninga og sölu auglýsinga í leikskrár og félagsblöð. Ef auglýsingasalan í heild skilar félaginu hagnaði skiptir ekki máli þó einstakir þættir starfseminnar ( t.d. sala á auglýsingum og styrktarlínum í leikskrá) standi ekki undir kostnaði.
Tekið skal fram að telja má til innskatts þann virðisaukaskatt er félag greiðir vegna aðfanga er eingöngu varða sölu á auglýsingum, þ.m.t. virðisaukaskatt af auglýsingaskiltum, áprentun á keppnisbúninga og prentun leikskrár og félagsblaðs.
Eitt af markmiðum íþróttafélaga er eins og fram kemur í bréfi yðar að stuðla að samheldni meðal félagsmanna, veita þeim þroskandi og heilbrigt viðfangsefni í frístundum sínum og auka íþróttaiðkun meðal barna og fullorðinna. Þegar á hinn bóginn íþróttafélag fer inn á svið atvinnustarfsemi þá er meginreglan sú að slík starfsemi sé virðisaukaskattsskyld.
Þegar rekstur íþróttafélags er skoðaður er hver hluti starfseminnar skoðaður sjálfstætt. Ríkisskattstjóri telur að ekki eigi að líta á alla heildarstarfsemina sem einn rekstrarþátt, heldur eigi að skoða hvern hluta starfseminnar sjálfstætt, t.d. auglýsingasölu, flugeldasölu, veitingasölu o.s.frv. Þannig er ekki hægt að líta svo á að þau svið þar sem mikil útgjöld eru ( t.d. kaup á leikmönnum og greiðslur til þeirra) skuli falla undir þau svið þar sem tekjur koma. Ríkisskattstjóri telur að ef tilgangur auglýsingasölunnar sé sá að skila hagnaði þá beri íþróttafélaginu að innheimta virðisaukaskatt vegna þeirrar sölu, en telja verður að eðli slíkrar auglýsingasölu sé það að öðlast hagnað.
Ríkisskattstjóri telur því með vísan til framanritaðs að auglýsingasala íþróttafélags sé virðisaukaskattsskyld.
Virðingarfyllst
f.h. ríkisskattstjóra
Grétar Jónasson