Dagsetning Tilvísun
25. janúar 1994 612/94
Virðisaukaskattur af endursendum vörum
Vísað er til bréfs yðar, dags. 19. janúar 1994, þar sem óskað er upplýsinga um hvort leggja beri virðisaukaskatt á kredit-reikninga vegna endursendra bóka frá bóksölum, þegar upphaflegu bókakaupin áttu sér stað þegar bækur báru ekki virðisaukaskatt.
Til svars bréfi yðar skal tekið fram að þegar vörum, sem seldar voru án virðisaukaskatts, til endurseljanda, er skilað, eftir að viðkomandi vörutegund er gerð skattskyld, skal fara með þau viðskipti eftir þeim reglum sem í gildi eru þegar vöru er skilað. Endursendingin fellur undir almennar reglur um endursendar vörur, sbr. l. tölul. 5. mgr. 13. gr. laganna. Þess vegna á heildsalinn (hér bóksalinn) að gefa út kreditreikning fyrir endursendu vörunum og bæta við 14% virðisaukaskatti. Sá skattur kemur sem leiðrétting á útskatti heildsalans og innskatti smásalans.
Dæmi:
Smásali kaupir vörur, sem falla utan skattskyldrar veltu, skv. 12. gr. virðisaukaskattslaga, fyrir kr. 1.000 án virðisaukaskatts. Vörunum er skilað eftir að þær fara að bera 14 % virðisaukaskatt.
Kreditreikningur sem heildsalinn gefur út færist þannig:
Endursendar vörur kr. 1.000,-
Vsk. kr. 140,-
Samtals kr. 1.140,
Heildsalinn dregur kr. l.000 frá skattskyldri veltu sinni (87,72% endurgreiddrar fjárhæðar) og frá útskatti hans dragast kr. 140 – þ.e. sú fjárhæð færist debetmegin á útskattsreikning. Á sama hátt dregur smásali kr. 1.000 frá vörukaupareikningi sínum og hann færir kr. 140 til lækkunar á innskatti sínum, þ.e. færir þessa fjárhæð kreditmegin á innskattsreikning.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Vala Valtýsdóttir