Dagsetning                       Tilvísun
9. feb. 1994                            616/94

 

Virðisaukaskattur af dagskrárefni sjónvarpsstöðvar

Vísað er til bréfs yðar, dags. 2. febrúar sl., þar sem óskað er staðfestingar ríkisskattstjóra á því að starfsemi sú sem lýst er í bréfinu, þ.e. dreifing á dagskrárefni S á myndbandsspólum, beri 14% virðisaukaskatt. Starfseminni er lýst þannig:

„Undirritaður hefur í hyggju að stofna fyrirtæki sem mun bjóða fiskiskipa- og flutningaskipaflota landsmanna upp á áskrift að dagskrá S. Hingað til hefur ekki verið hægt að veita skipum á hafi úti þessa þjónustu vegna tæknilegra örðugleika, en samkvæmt samningi sem gerður hefur verið á milli undirritaðs og Í, hefur undirrituðum verið veitt heimild til að dreifa dagskrárefni sjónvarpsstöðvarinnar á myndbandsspólum um borð í íslensk skip.“

Samkvæmt 4. tölul. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, skal innheimta 14% virðisaukaskatt af afnotagjöldum útvarpsstöðva. Það er mat ríkisskattstjóra að í þessu tilviki sé ekki um slíka sölu að ræða þar sem viðkomandi hefur ekki leyfi til útvarps- eða sjónvarpsrekstrar en slíkt leyfi er forsenda fyrir því að starfsemi geti talist útvarps- eða sjónvarpsrekstur.

Með vísan til framanritaðs ber að innheimta 24,5% virðisaukaskatt af umræddri starfsemi.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Vala Valtýsdóttir.