Dagsetning                       Tilvísun
4. maí 1994                            626/94

 

Sérstök skráning

Vísað er til bréfs yðar, dags. 12. nóvember 1992, þar sem óskað er álits ríkisskattstjóra á því hvort heimild sé til sérstakrar skráningar eftir að byggingaframkvæmdir eru hafnar þ.e. að byggingaraðili hafi ekki rétt til sérstakrar skráningar í upphafi en ákveði síðar að selja eignina til virðisaukaskattsskylds aðila.

Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 577/1989 um frjálsa og sérstaka skráningu vegna leigu eða sölu á fasteign þarf samkvæmt 1. gr. að tilgreina þá fasteign sem skráningunni er ætlað að ná til. Skilyrði fyrir sérstakri skráningu eru:

  1. Skriflegur og fullgildur kaupsamningur byggingaraðila og skattskylds aðila um   fasteignina.
  2. Yfirlýsing kaupanda um ætluð not hans á fasteigninni.
  3. Skuldbinding kaupanda um yfirtöku á kvöð um leiðréttingu innskatts, sbr. 3. mgr. 16. gr. laga nr. 50/1988, verði breyting á notkun fasteignar sem hafi í för     með sér breytingu á frádráttarrétti.

Hafi byggingaraðili ekki gert samning um sölu atvinnuhúsnæðis í lok fyrsta uppgjörstímabils eftir að byggingarframkvæmdir hófust getur hann fengið heimild skattstjóra til sérstakrar skráningar, enda fallist skattstjóri á skýrslu aðila um að viðkomandi eign sé ætluð til nota fyrir atvinnurekstur skráðs aðila. Skilyrði fyrir skráningu í þessu tilviki er að byggingaraðili leggi fram tryggingu fyrir áætluðum virðisaukaskatti af byggingarkostnaði eignarinnar. Skattstjóri metur hvað telst fullnægjandi trygging í þessu tilviki.

Trygging fellur úr gildi ef byggingaraðili annaðhvort selur skráðum aðila þá eign sem sérstök skráning tekur til eða byggingaraðili fær heimild til frjálsrar skráningar.

Með þessum hætti er mögulegt fyrir þá sem ekki hafa gert kaupsamning við kaupanda að fá heimild til sérstakrar skráningar með því að leggja fram tryggingu eftir lok fyrsta uppgjörstímabils.

Ef byggingaraðili ákveður eftir að framkvæmdir hefjast að selja bygginguna til virðisaukaskattsskylds aðila telur ríkisskattstjóri að hann geti fengið sérstaka skráningu enda leggi hann fram tryggingu sbr. 3. gr. reglug. nr. 577/1989.

Virðisaukaskattur, sbr. 2. gr. reglug. nr. 576/1989, sem byggingaraðili hefur skilað vegna þeirrar byggingar sem sérstök skráning nær til, svo og innskattur skv. 2. mgr. 3. gr. sömu reglugerðar, skal endurgreiddur honum eigi síðar en 30 dögum eftir að skattstjóri hefur samþykkt skráninguna.

Ef byggingaraðili selur bygginguna til skattskylds aðila þá fellur trygging sú er hann hefur sett úr gildi enda uppfylli kaupandi þau skilyrði er sett eru í 2. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 577/1989 og nefnd eru hér að framan.

Ríkisskattstjóri telur ekkert því til fyrirstöðu að byggingaraðili hafi rétt til sérstakrar skráningar samkvæmt framansögðu enda séu öll skilyrði reglugerðarinnar fyrir hendi.

Beðist er velvirðingar á þeirri töf er orðið hefur að svara bréfi yðar.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Vala Valtýsdóttir