Dagsetning Tilvísun
26. ágúst 1996 749/96
Virðisaukaskattur af einblöðungum
Vísað er til bréfs yðar, dags. 12. ágúst 1996, þar sem spurst er fyrir um hvort ritið Í sé tímarit í skilningi virðisaukaskattslaga.
Í bréfi yðar segir að ritið komi út hálfsmánaðarlega allt árið. Í fyrstu kom það út í bókarformi, en síðustu árin sem blöðungur. Áskrifendur fá í upphafi möppu til þess að safna blöðunum í.
Að mati ríkisskattstjóra telst Í hvorki tímarit né bók í skilningi virðisaukaskattslaga og ber því að innheimta 24,5% virðisaukaskatt af sölunni, svo sem fram kemur í hjálögðum leiðbeiningum um virðisaukaskatt af útgáfustarfsemi, dags. 14. október 1993.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Vala Valtýsdóttir