Dagsetning Tilvísun
17. apríl 1997 795/97
Virðisaukaskattur af þóknun lögmanna í innheimtumálum
I.
Í bréfi ríkisskattstjóra til L dags. 17. janúar 1990, um virðisaukaskatt af lögfræðiþjónustu, kemur m.a. fram að ekki megi tilgreina virðisaukaskatt í kröfubréfi gagnvart skuldara, hvorki sérstaklega né gefa á annan hátt til kynna að virðisaukaskattur sé innifalinn í fjárhæð, enda getur skuldari aldrei átt innskattsfrádráttarrétt vegna þessa (aðeins þjónustukaupi (kröfuhafi) getur átt hann).
Þrátt fyrir þetta hefur nokkuð borið á því að lögmenn tilgreini virðisaukaskatt í kröfubréfum gagnvart skuldara og margir skuldarar talið sig geta innskattað á grundvelli þess.
II.
Í téðu bréfi ríkisskattstjóra kemur fram að í innheimtumálum þurfi sérstaklega að hafa í huga að innskattsfrádráttarréttur valdi því að virðisaukaskattur myndi ekki kostnað hjá virðisaukaskattsskyldum þjónustukaupa. Í innheimtumálum þurfi því að greina á milli þess hvort krafa hafi stofnast vegna 1) virðisaukaskattsskyldrar starfsemi þjónustukaupa eða 2) óskattskyldrar starfsemi hans.
Um 1) Þegar innheimtukrafa varðar virðisaukaskattsskylda starfsemi þjónustukaupa er rétt að sú fjárhæð sem lögmaður fyrir hönd þjónustukaupa krefur skuldara um til lúkningar á málskostnaði sé án virðisaukaskatts.
Um 2) Í öðrum tilvikum hefur þjónustukaupi sjálfur kostnað af þeim virðisaukaskatti sem fellur á innheimtuþjónustuna og verður að fá hann bættan af skuldara. Þ.e.a.s. lögmaður innheimtir virðisaukaskatt gagnvart slíkum þjónustukaupa og endurkrefur skuldara um þann kostnað fyrir hönd þjónustukaupans.
III.
Í umræddu bréfi ríkisskattstjóra kemur fram að ekki megi tilgreina virðisaukaskatt í kröfubréfi gagnvart skuldara, hvorki sérstaklega né gefa á annan hátt til kynna að virðisaukaskattur sé innifalinn í fjárhæð, eins og fram kom undir I. lið að framan.
Þrátt fyrir þetta getur ríkisskattstjóri fallist á að þegar skuldari er endurkrafinn um kostnað vegna virðisaukaskatts, sbr. lið II. 2), komi fram í kröfubréfi gagnvart honum að kostnaður vegna virðisaukaskatts sé innifalinn í innheimtukostnaði, enda komi skýrt fram að skuldari geti ekki talið hann til innskatts.
Þetta gæti t.d. komið fram með eftirgreindum hætti: Kostnaður vegna virðisaukaskatts er innifalinn í innheimtukostnaði. Skuldara er með öllu óheimilt að telja til hann innskatts.
Kostnaður vegna virðisaukaskatts má ekki koma fram sem sérgreind fjárhæð í innheimtubréfi.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Ingibjörg Ingvadóttir
Afrit: L