Dagsetning Tilvísun
4. mars 1999 908/99
Virðisaukaskattur af aðgangseyri að ljósabekkjum á sundstöðum
Að gefnu tilefni vill ríkisskattstjóri minna á að innheimta ber virðisaukaskatt af aðgangi að ljósabekkjum á sundstöðum.
Aðgangseyrir að sundstöðum og heilsuræktarstöðvum er undanþeginn virðisauka-skatti skv. 5. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Að mati ríkis-skattstjóra fellur aðgangur að líkamsræktartækjum, sturtu og nuddpottum undir þessa undanþágu, hvort sem þessi þjónusta er seld sérstaklega eða ekki.
Þegar fleiri en ein tegund þjónustu er seld sem þjónustuheild, þ.e. ekki er hægt að kaupa eina tegund þjónustu sérstaklega þá ber að innheimta virðisaukaskatt af þjónustuheildinni jafnvel þó einhver tegund þjónustunnar væri undanþegin virðisaukaskatti væri hún seld sérstaklega. Dæmi um þetta er þegar aðgangur að sundlaug er innifalinn í verði ljósakorts, enda hafi kaupandinn ekki val um að kaupa aðgang að ljósabekk sérstaklega.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Vala Valtýsdóttir
Hlín Daníelsdóttir