Dagsetning Tilvísun
10. janúar 2000 931/00
Virðisaukaskattur – grunnfjárhæðir
Frá 1. janúar 2000 eru framreiknaðar grunnfjárhæðir í eftirfarandi reglugerðarákvæðum þær sem hér á eftir greinir:
– 3. tölul. 1. mgr. 2. gr. reglugerðar nr. 562/1989
kr. 924.600.
– 1. mgr. 5. gr. reglugerðar nr. 576/1989
kr. 809.000.
– 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 288/1995
kr. 23.700.
– 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 288/1995
kr. 4.730.
Meðfylgjandi er minnisblað um grunnfjárhæðir í virðisaukaskatti.
Virðingarfyllst
f. h. ríkisskattstjóra
Gunnar Gunnarsson