Dagsetning Tilvísun
28. maí 1990 80/90
Virðisaukaskattur – öryggisbúnaður í skip.
Vísað er til bréfs yðar, dags. 19. feb. sl., þar sem spurt er hvort ákvæði 7. tölul. 1. mgr. 12. gr. laga um virðisaukaskatt taki til (a) sölu öryggiskerfa, s.s. eldviðvörunarbúnaðar, slökkvikerfa og þjófavarnakerfa, um borð í skip og vinnu við uppsetningu á þeim og (b) sölu handslökkvitækja til skipa og vinnu við hleðslu á þeim.
Til svars erindinu skal tekið fram að samkvæmt tilvitnuðu ákvæði laga um virðisaukaskatt er viðgerðar- og viðhaldsvinna við skip og fastan útbúnað þeirra, svo og sala varahluta sem viðgerðaraðili notar í því sambandi, undanþegin skattskyldri veltu.
Með föstum útbúnaði skips er – eins og fram kemur í greinargerð frumvarps til laga um virðisaukaskatt – aðallega átt við útbúnað sem er fastur (nagl- eða skrúfufastur) við skip, t.d. fjarskiptabúnað, ratsjá og önnur siglingatæki, en ákvæðið nær einnig til björgunarbáta og annars öryggisútbúnaðar. Ný tæki sem sett eru í skip falla einnig undir þetta ákvæði.
Samkvæmt framansögðu verður að telja að sala og uppsetning á handslökkvitækjum og öryggiskerfum um borð í skipi sé undanþegin skattskyldri veltu (beri „núll-skatt“) þegar seljandi setur tæki þessi og kerfi niður í viðkomandi skip. Viðgerðar- og viðhaldsvinna á slíkum tækjum og búnaði er einnig undanþegin skattskyldri veltu.
Undanþáguákvæðið á ekki við í þeim tilvikum þegar fyrirtæki selur tæki, búnað, efni eða varahluti í skip án þess að annast sjálft viðgerð eða uppsetningu.
Einnig skal tekið fram að ákvæðið nær ekki til skemmtibáta og skal því ætíð innheimta virðisaukaskatt af viðgerðar- og viðhaldsvinnu, svo og efni og varahlutum til þeirra.
Þeir aðilar sem selja þjónustu og vörur samkvæmt þessari undanþágu skulu geta þess á reikningi við hvaða skip var unnið og skal útgerðarmaður eða yfirmaður skips staðfesta með yfirlýsingu og áritun sinni á afrit reiknings að þjónustan varði skip hans.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra
Ólafur Ólafsson.