Dagsetning                       Tilvísun
22. júlí 1991                             297/91

 

Efni: Virðisaukaskattur – útgáfa tímarits.

Vísaá er til bréfs yáar, dags. 30. júlí 1990, þar sem leitað er álits ríkisskattstjóra á því hvort átthagafélagið sé skráningarskylt samkvæmt lögum um viráisaukaskatt vegna útgáfu sinnar á tímaritinu „Strandapóstinum“. Fram kemur aá tímaritið er selt félögum í átthagafélaginu og hefur auk þess tekjur af auglýsingura.

Ríkisskattstjóri hefur gefiá út leiábeiningar um viráisaukaskatt af útgáfustarfsemi og fylgja þær hjálagáar. Eins og fram kemur í leiðbeiningunum (kafla 2.3, a-liá} lítur ríkisskattstjóri svo á aá útqáfustarfsemi félagasamtaka sé skráningarskyld ef hagnaður er af útgáfunni, þ. e. þegar tekjur af sölu oq af auglýsingasölu er almennt hærri en kostnaður viá útgáfu, enda nemi tekjur a.m.k. 172.300 kr. á ári (miáað við byggingarvísitölu 1. janúar 1991). Skráning leiðir til þess að skylt er að innheimta og skila viráisaukaskatti af auglýsingasölu og fæst þá jafnframt endurgreiddur (frádreginn) sá virðisaukaskattur sem félagið greiáir vegna prentunar og annars beins útgáfukostnaáar.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra;

Ólafur Ólafsson.