Dagsetning                       Tilvísun
22. júlí 1991                              313/91

 

Virðisaukaskattur – útgáfustarfsemi.

Vísað er til bréfs yðar, dags. 15. apríl 1991, þar sem leitað er álits ríkiskattstjóra á því hvort A fái endurgreiddan virðisaukaskatt af útgáfukostnaði fréttarits sem hún gefur út. Fram kemur að auglýsingar hafa ekki verið birtar í fréttaritinu og því virðist dreift án endurgjalds.

Ríkisskattstjóri hefur nú gefið út leiðbeiningar um virðisaukaskatt af útgáfustarfsemi. Fylgja þær hjálagðar.

Að áliti ríkisskattstjóra getur útgáfa fréttaritsins ekki talist skráningarskyld starfsemi samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Útgáfa ritsins virðist þáttur í almennri starfsemi þeirra samtaka sem standa að A og ekki verður séð að sérstök sjónarmið um útgáfustarfsemi félagasamtaka, sem rakin eru í leiðbeiningum ríkisskattstjóra (kafli 2.3, a-liður), eigi við um útgáfuna.

Samkvæmt framansögðu getur ekki komið til endurgreiðslu virðisaukaskatts af útgáfukostnaði þessa rits.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Ólafur Ólafsson.