Dagsetning Tilvísun
22. júlí 1991 318/91
Virðisaukaskattur – útgáfa fréttarits.
Vísað er til bréfs yðar, dags. 12. janúar 1990, varðandi virðisaukaskatt af fréttariti félagsins, H. Rit þetta mun sent félagsmönnum án endurgjalds í þeim tilgangi að veita þeim upplýsingar um félagsstarfið og fræðslu. Auglýsingar eru birtar í ritinu en ekki kemur fram í bréfi yðar hvort tekjur þar af standi undir útgáfukostnaði.
Ríkisskattstjóri hefur nú gefið út leiðbeiningar um virðisaukaskatt af útgáfustarfsemi. Fylgja þær hjálagðar.
Í kafla 2.3 í leiðbeiningunum er fjallað um skráningarskyldu vegna varanlegrar og reglulegrar útgáfustarfsemi félagasamtaka. Vísast til þess sem þar segir um úrlausn þess atriðis hvort félagið sé skráningarskylt vegna útgáfunnar.
Það er álit ríkisskattstjóra að séu sölutekjur og tekjur af auglýsingum í fréttariti yðar lægri en útgáfukostnaður geti útgáfa þess ekki talist skráningarskyld starfsemi. Byggist þetta á því að útgáfa ritsins virðist þáttur í almennri starfsemi félagsins og ekki verður séð að sérstök sjónarmið um útgáfustarfsemi félagasamtaka, sem rakin eru í leiðbeiningum ríkisskattstjóra (kafli 2.3, a-liður), eigi við um útgáfuna.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Ólafur Ólafsson.