Dagsetning                       Tilvísun
22. júlí 1991                             321/91

 

Virðisaukaskattur – útgáfustarfsemi.

Vísað er til bréfs yðar, dags. 25. mars 1991, þar sem leitað er álits ríkiskattstjóra á því hvernig fara skuli með virðisaukaskatt af L. Fram kemur í bréfi yðar að tekjur af blaðinu standi ekki undir útgáfukostnaði.

Ríkisskattstjóri hefur nú gefið út leiðbeiningar um virðisaukaskatt af útgáfustarfsemi. Fylgja þær hjálagðar.

Að áliti ríkisskattstjóra getur útgáfa Leiklistarblaðsins ekki talist skráningarskyld starfsemi samkvæmt lögum um virðisaukaskatt. Útgáfa ritsins virðist þáttur í almennri starfsemi útgefandans, B, og að ekki verður séð að sérstök sjónarmið um útgáfustarfsemi félagasamtaka, sem rakin eru í leiðbeiningum ríkisskattstjóra (kafli 2.3, a-liður), eigi við um útgáfuna.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Ólafur Ólafsson.