Dagsetning Tilvísun
3. apríl 1990 37/90
Endurgreiðsla söluskatts af birgðum um áramót.
Vísað er til bréfs yðar, dags. 22. des. sl., til skattstjórans í Vestfjarðaumdæmi, sem hann framsendi ríkisskattstjóra til afgreiðslu. Í bréfinu er spurt um endurgreiðslu söluskatts af birgðum orkusölufyrirtækis um sl. áramót af efni sem þau nota vegna starfsemi sinnar.
Til svars erindinu sendist yður hér með afrit af bréfi ríkisskattstjóra til allra skattstjóra, dags. 7. feb. sl. Í því kemur m.a. fram að engin heimild er til að endurgreiða orkusölufyrirtækjum söluskatt af birgðum þeirra um áramót af efni sem þau nota til eigin þarfa.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra
Ólafur Ólafsson.