Dagsetning                       Tilvísun
23. desember 1993                            596/93

 

Endurgreiðsla virðisaukaskatts af sérfræðiþjónustu.

Vísað er til bréfs yðar, dags. 18. október 1993, þar sem álit ríkisskattstjóra er leitað á því hvort A geti fengið endurgreiddan virðisaukaskatt vegna kaupa á sérfræðiþjónustu þ.e. þjónustu verkfræðinga, tæknifræðinga og arkitekta eða hvort reglugerð nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði, gildi og þ.a.l. fáist virðisaukaskatturinn ekki endurgreiddur.

Í bréfi yðar kemur fram að sveitastjórnir skipi húsnæðisnefndir og beri ábyrgð á starfsemi þeirra sbr. lög um Húsnæðisstofnun ríkisins nr. 86/1988 með síðari breytingum. Húsnæðisnefnd hefur á sinni hendi samræmingu á öllu félagslegu húsnæði í sveitarfélaginu, þ.e. eignaríbúðum, kaupleiguíbúðum og leiguíbúðum. Helstu verkefni nefndarinnar eru:

  1. Áætlanir og kannanir
  2. Undirbúningur framkvæmda.
  3. Umsjón með framkvæmdum og eftirlit.
  4. Úthlutanir á félagslegum íbúðum og mat á greiðslugetu.

Samkvæmt 5. tl. 1. mgr. 12. gr. reglugerðar nr. 248/1990, um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila kemur fram að endurgreiða skuli sveitarfélögum og ríkisstofnunum virðisaukaskatt vegna m.a. þjónustu verkfræðinga, tæknifræðinga og arkitekta. Samkvæmt 56. gr. laga nr. 86/1988 um Húsnæðisstofnun Ríkisins er það borgarstjórn sem skipar A.

Ríkisskattstjóri telur að A geti fengið endurgreiðslu þess virðisaukaskatts er hún hefur greitt fyrir þjónustu verkfræðinga, tæknifræðinga og arkitekta þar sem þarna er um að ræða eina af undirstofnunum Reykjavíkurborgar og fellur hún þ.a.l. undir ákvæði reglugerðarinnar. Ekki er á hinn bóginn heimild til endurgreiðslu skv. reglugerð nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði.

 

Virðingarfyllst

f.h. ríkisskattstjóra

Grétar Jónasson