Dagsetning Tilvísun
2. mars 1994 621/94
Endurgreiðsla virðisaukaskatts til opinberra aðila.
Vísað er til bréfs yðar, dags. 25. nóvember þar sem leitað er eftir upplýsingum um það hvort ýmis sveitarfélög sem keypt hafa sorptunnur af fyrirtæki yðar geti fengið þann virðisaukaskatt er féll á kaup þeirra endurgreiddan. Fram kemur í bréfi yðar að sveitarfélögin ýmist selja eða leigja tunnurnar eða afhenda bæjarbúum þær endurgjaldslaust.
Til svars erindi yðar þá telur ríkisskattstjóri að ekki sé fyrir hendi heimild til þess að endurgreiða sveitarfélögum þann virðisaukaskatt er fellur á kaup þeirra á sorptunnum sbr. 1. tl. 12. gr. reglugerðar nr. 248/1990, um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila.
Virðingarfyllst
f.h. ríkisskattstjóra
Vala Valtýsdóttir