Dagsetning Tilvísun
17. mars 1995 674/95
Endurgreiðsla virðisaukaskatts vegna endurbóta og viðhalds
Vísað er til bréfs yðar dags. 4. janúar 1995, þar sem óskað er álits ríkisskattstjóra á því hvort vinna manna við endurbætur og viðhald A skapi rétt til endurgreiðslu á virðisaukaskatti.
Í bréfi yðar segir m.a.:
“X var byggt af A fyrir seinni heimsstyrjöld sem bústaður fyrir hollenskar nunnur, þ.e.a.s. heimili þeirra. Í dag er þetta heimili 20 pólskra A sem komu hingað til lands fyrir sjö árum. X er og mun verða þeirra lögheimili það sem eftir er ævi þeirra, enda fara þær aldrei út fyrir veggi X.
K er í eign K. Engin atvinnustarfsemi fer fram innan veggja klaustursins. Nunnurnar eru algjörlega sjálfstæðar fjárhagslega, og lifa á gjöfum og ölmusu frá góðviljuðu fólki sem vill styrkja bænastarf þeirra. Ólíkt öðrum reglum þá er A einvörðungu fyrirbænaregla.”
Í 1. gr. reglugerðar nr. 449/1990, um endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu manna við íbúðarhúsnæði, segir að endurgreiða beri virðisaukaskatt sem eigendur íbúðarhúsnæðis hafa greitt vegna vinnu manna við endurbætur og viðhald þess. Í 2. gr. sömu reglugerðar segir að endurgreiðsla taki ekki til orlofshúsa, sumarbústaða og bygginga fyrir starfsemi sem fellur undir ákvæði 3. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt. Hér er t.d. átt við sjúkrahús, heilsuhæli, dvalarheimili og ýmsar byggingar fyrir félagslega þjónustu.
Af bréfi yðar má ráða að húsnæðið sé eingöngu notað til íbúðar fyrir A.
Samkvæmt framansögðu er það álit ríkisskattstjóra að endurgreiða beri virðisauka-skatt af vinnu manna við endurbætur og viðhald við umrætt húsnæði enda verður ekki séð að það sé til annarra nota en íbúðar.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Vala Valtýsdóttir