Dagsetning                       Tilvísun
18. ágúst 1997                             818/97

 

Fólksflutningar á bátum undir leiðsögn stýrimanna – námskeið og ferðir á kajökum og kanóum o.fl.

Vísað er til bréfs yðar, dags. 4. júlí sl., þar sem óskað er eftir áliti ríkisskattstjóra á því hvort innheimta beri virðisaukaskatt af sölu á bátsferðum niður H. Auk þess hvort innheimta beri virðisaukaskatt af sölu á námskeiðum í kajakaróðri o.fl.

Til svars bréfi yðar þá er það álit ríkisskattstjóra að sala á ferðum niður H undir leiðsögn stýrimanna sé undanþegin þar sem um fólksflutninga er að ræða, sbr. 6. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum. Í þessu sambandi skal jafnframt tekið fram að hlífðarfatnaður sem afhentur er í tengslum við umræddar bátsferðir telst svo nauðsynlegur og órjúfanlegur búnaður til notkunar í ferðunum að ekki ber að innheimta virðisaukaskatt af þeim hluta þjónustunnar. Tekið skal fram að ferðir á kanóum og kajökum geta ekki talist til fólksflutninga ef ekki er um að ræða skipulagða hópferð undir leiðsögn.

Hvað varðar sölu umræddra aðila á veitingum og námskeiðum í kanóa- og kajakaróðri þá er ekkert undanþáguákvæði virðisaukaskattslaga sem tekur til þeirrar starfsemi og ber því að innheimta virðisaukaskatt af þeirri sölu.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir.