Dagsetning                       Tilvísun
16. nóv. 1990                            168/90

 

Frádráttur virðisaukaskatts vegna flugvélar.

Vísað er til ódagsetts bréfs yðar, sem barst ríkisskattstjóra 30. júlí sl., þar sem leitað er álits embættisins á því hvort telja megi virðisaukaskatt vegna reksturs flugvélar til innskatts. Fram kemur að fyrirtæki yðar, sem selur tæki til sjávarútvegs, notar vélina m.a. ti1 að flytja varahluti og tæki á viðgerðarstað.

Heimilt er að telja virðisaukaskatt vegna reksturs flugvéla til innskatts að því leyti sem tæki þessi eru notuð vegna virðisaukaskattsskyldrar starfsemi. Skattstjóri metur í einstökum tilvikum hvort innkaupum er réttilega skipt milli rekstrar og einkanota. Ákvörðun skattstjóra er kæranleg skv. 29. gr. virðisaukaskattslaga.

Samkvæmt 2. mgr. 6. gr. reglugerðar nr. 530/1989, um frádrátt virðisaukaskatts, skal skattstjóri taka mið af þeim reglum og þeirri framkvæmd sem mótast hefur við tekjuskattsálagningu þegar hann leggur mat á það hvort innkaupum er réttilega skipt milli rekstrar og einkanota.

Tekið skal fram að ferðakostnaður, sendingarkostnaður og annar slíkur kostnaður, sem innifalinn er í verði vöru eða þjónustu eða seljandi krefur kaupanda sérstaklega um, telst til skattverðs, sbr. 7. gr. virðisaukaskattslaga. Því ber fyrirtækinu að innheimta og skila virðisaukaskatti af þeim kostnaði sem það krefur viðskiptamenn sína um vegna notkunar flugvélarinnar.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Ólafur Ólafsson.