Dagsetning                       Tilvísun
18. nóvember 1993                            576/93

 

Heilbrigðisþjónusta

Vísað er til bréfs yðar, dags. 6. október 1993, þar sem óskað er eftir áliti ríkisskattstjóra um virðisaukaskattsskyldu stoðtækjasmiða.

Til svars bréfi yðar skal tekið fram að í 1. tl. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er undanþegin virðisaukaskatti þjónusta sjúkrahúsa, fæðingarstofnana, heilsuhæla og annarra hliðstæðra stofnana, svo og lækningar, tannlæknar og önnur eiginleg heilbrigðisþjónusta. Við ákvörðun þess hvort tiltekin þjónusta falli undir hugtakið „önnur eiginleg heilbrigðisþjónusta“ í 1. tl. 3. mgr. 2. gr. virðisaukaskattslaga, þarf starfsemi að mati ríkisskattstjóra að uppfylla þau skilyrði að (1) þjónusta aðila falli undir lög nr. 24/1985, um starfsheiti og starfsréttindi heilbrigðisstétta, eða sérlög um heilbrigðismál, og (2) að þjónusta þessara aðila felist í meðferð á líkama sjúklings til lækninga eða hjúkrunar eða sambærilegrar meðferðar.

Þar sem þjónusta stoðtækjasmiða virðist ekki uppfylla ofangreind skilyrði, þá er hún skattskyld samkvæmt almennum reglum virðisaukaskattslaga.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Bjarnfreður Ólafsson