Dagsetning Tilvísun
17. október 1996 756/96
Innskattsfrádráttur af rekstri “virðisaukaskattsbifreiða”
Vísað er til bréfs yðar, dags. 30. ágúst 1996, svo og samtals við yður, þar sem spurst er fyrir um innskattsfrádrátt af rekstri “virðisaukaskattsbifreiða”.
Um er að ræða félag í Reykjavík sem rekur skoðunarstofu og hefur þar aðalstarfsstöð. Skoðunarstöðvar sem þessi eru til komnar vegna krafna um eftirlit við inngöngu Íslands í EES. Starfsemi skoðunarstöðvarinnar felst í skoðun á fiski, og fer þannig fram að skoðunarmenn fara í fiskverkunarhús og fiskiskip og taka sýni eftir ákveðinni formúlu. Síðan er farið með sýnin á skoðunarstofuna og þau rannsökuð og unnin skýrsla um niðurstöðurnar. Félagið hefur starfsmenn úti á landi og er þeim starfs síns vegna nauðsynlegt að hafa bifreið til umráða þar sem starfsvettvangur hvers starfsmanns eru allar fiskverkunarstöðvar og skip á stóru svæði. Starfsemi þeirra er að því leyti öðruvísi en þeirra sem vinna í Reykjavík, að þeir fara í fiskverkunarhúsin og skipin og taka sýni. Að því loknu fara þeir heim til sín, skrifa skýrslu um sýnatökuna, búa um sýnin til sendingar og senda síðan allt til Reykjavíkur til frekari vinnslu. Skoðunarmennirnir eru launamenn hjá félaginu. Félagið hefur ekki í hyggju að koma upp rannsóknaraðstöðu úti á landi né heldur eiginlegri skrifstofuaðstöðu, heldur verður það starf unnið á heimilum skoðunar-manna svo sem áður er lýst.
Í lok bréfsins eru lagðar fram tvær spurningar:
- Er félaginu heimilt að líta á heimili viðkomandi skoðunarmanns úti á landi sem starfsstöð félagsins þar? Þarf félagið e.t.v. að sækja um sérstaka skráningu vegna þessa og skrá þar útibú sitt?
- Sé félaginu heimilt að líta á heimili viðkomandi skoðunarmanns úti á landi sem starfsstöð félagsins er heimilt að geyma bifreið félagsins þar yfir nótt án þess að einkaafnot reiknist og getur félagið nýtt innskatt af rekstri bifreiðarinnar?
Samkvæmt 9. gr. reglugerðar nr. 192/1993, um innskatt, er það skilyrði þess að telja megi til innskatts virðisaukaskatt vegna öflunar og notkunar bifreiða, að bifreiðin sé eingöngu notuð vegna sölu skattaðila á skattskyldum vörum og þjónustu. Þar segir einnig að ökutæki sé ekki talið notað eingöngu vegna sölu á skattskyldum vörum og þjónustu ef það er notað af eiganda eða starfsmanni til aksturs á milli heimilis og vinnustaðar. Þetta á einnig við ef bifreið er geymd við heimili starfsmanns.
Ríkisskattstjóri telur heimili starfsmanna á landsbyggðinni ekki geta talist starfstöðvar eða útibú á vegum félagsins og því óheimilt að geyma umræddar bifreiðar við heimili starfsmanna ef nýttur er réttur til frádráttar virðisaukaskatts af kaupverði bifreiða. Með öðrum orðum er óheimilt að geyma bifreið á rauðum númerum við heimili starfsmanns. Á það skal hins vegar bent að heimilt er að nota bifreið á venjulegum númerum (virðisaukaskattur af kaupverði ekki innskattaður) í virðisaukaskattsskyldum rekstri auk einkanota og er þá heimilt að telja virðisauka-skatt af þeim rekstrarkostnaði er varðar hinn skattskylda rekstur til innskatts, sbr. 5. mgr. 9. gr. reglugerðar nr. 192/1993.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Vala Valtýsdóttir