Dagsetning                       Tilvísun
24. september 1990                            132/90

 

Innskattur af flotvinnubúningum.

Með bréfi yðar, dags. 14. sept. sl., óskið þér álits ríkisskattstjóra á því hvort útgerðarfyrirtæki megi líta á virðisaukaskatt vegna kaupa á flotvinnubúningum sem innskatt í eftirfarandi tilvikum:

  1. Ef útgerð kaupir flotvinnubúning fyrir sjómann og afhendir honum búninginn til að nota þann tíma sem hann er ráðinn á skip.
  1. Ef útgerð kaupir flotvinnubúning og afhendir sjómanni hann gegn því að sjómaður afsali sér fatapeningum að hluta eða öllu leyti í ákveðinn tíma. Að þeim tíma loknum telst sjómaður eiga búninginn.

Að áliti ríkisskattstjóra er skráðum (skattskyldum) aðila heimilt að telja til innskatts virðisaukaskatt vegna kaupa á vinnufatnaði og einkennisbúningum fyrir starfsmenn sem þeir fá endurgjaldslaust, enda sé fatnaður þessi í eigu fyrirtækisins og eingöngu notaður af starfsmönnum við vinnu í þágu þess. Svar við fyrsta lið fyrirspurnar yðar er því jákvætt.

Fyrirtæki hefur hins vegar ekki rétt til frádráttar ef vinnufatnaður o.fl. er afhentur starfsmanni til eignar án endurgjalds eða ef notkun ekki bundin við vinnustað. Í þessum tilvikum er um að ræða hlunnindi í skilningi 3. tölul. 3. mgr. 16. gr. laga um virðisaukaskatt. Sama er þótt starfsmaður greiði málamyndagjald fyrir afhendinguna.

Afhendi fyrirtæki starfsmanni vinnufatnað o.fl. gegn greiðslu er eftir atvikum um að ræða sölu eða leigu fatnaðarins. Þá skal telja endurgjaldið til skattskyldrar veltu fyrirtækisins, þ.e. innheimta og skila virðisaukaskatti af andvirði fatnaðarins. Um skattverð (það verð sem virðisaukaskattur reiknast af) fer samkvæmt ákvæðum 8. gr. laga um virðisaukaskatt. Í þessu falli hefur fyrirtækið innskattsfrádrátt samkvæmt almennum reglum um vörukaup til endursölu. Virðist það tilvik sem um ræðir í 2. lið fyrirspurnar yðar falla hér undir.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Jón Guðmundsson.