Dagsetning                       Tilvísun
26. október 1993                             562/93

 

Reikningsútgáfa

Vísað er til bréfs yðar, dags. 14. október 1993, þar sem álit ríkisskattstjóra er leitað vegna ýmissa atriða er varða reikningsfærslu. Spurt er um eftirtalin atriði:

  1. a. Hvort gera eigi reikning fyrir fyrirframgreiðslu þegar hún kemur til greiðslu.

    b. Hvort gera eigi reikning fyrir því sem greiðsluhæft er á hverjum tíma.

    c. Hvort gera eigi reikning fyrir geymslufé þegar það kemur til greiðslu.

    d. Hvort gera eigi reikning fyrir öllu sem unnið er á hverjum tíma þótt 5% af upphæðinni komi ekki til greiðslu fyrr en að 18 mánuðum liðnum.

Svar:

a. Samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um virðisaukaskatt þá skal þegar greiðsla fer fram að fullu eða hluta áður en afhending á sér stað telja 80,32% af hinni mótteknu fjárhæð til skattskyldrar veltu á því tímabili sem greiðslan fer fram þ.e.a.s. 19,68% móttekinnar fjárhæðar telst virðisaukaskattur (útskattur verktaka). Þessi regla á við 1. mgr. 14. gr. virðisaukaskattslaganna þegar virðisaukaskatturinn er 24,5%. Móttakandi greiðslu skal gefa út kvittun til greiðanda en þó er heimilt að gefa út sölureikning vegna slíkra innborgana sbr. 1. mgr. 7. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila.

b. Meginreglan er sú að gera á reikning fyrir því sem afhent er hverju sinni (afhendingarreglan). Fyrirtæki yðar er heimilt að gefa út sölureikning í lok hvers mánaðar vegna þeirrar þjónustu sem innt var af hendi frá upphafi til loka þess mánaðar, sbr. 3. mgr. 3. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila. Sama gildir, með hliðsjón af viðskiptavenjum, við sölu á vöru til þeirra sem nota hið keypta í atvinnurekstri sínum, enda fái kaupandi með vörunni í stað reiknings afgreiðsluseðil með upplýsingum um tegund sölu og magn. Óheimilt er að tilgreina virðisaukaskatt á afgreiðsluseðli. Seljandi skal varðveita afrit afgreiðsluseðils með viðkomandi sölureikningi.

c. Til svars liðum 3 og 4 þá er þeim til hægðarauka svarað saman. Verktaka ber að telja til skattverðs geymslufé sem verkkaupi heldur eftir af greiðslum til tryggingar því að verktaki ljúki verkinu og skili því í umsömdu ástandi.

Sem dæmi um það hvernig reikningur frá verktaka fyrir ákveðinn verkþátt gæti litið út má til athugunar geta eftirfarandi dæmis.

Tilboðsverð fyrir verkþátt …. kr. 100.000
Vsk. 24.5%……………………………. kr.   24.500
                         _________
                         kr. 124.500
Geymslufé 5%…………………….. kr.   6.225
                        _________
Til greiðslu frá verkkaupa….. kr. 118.275

Eins og sést af dæminu á að reikna virðisaukaskattinn af heildarverðinu, þ.e. áður en geymsluféð er dregið frá. Þegar úttekt á verkinu hefur farið fram og geymsluféð kemur til endurgreiðslu gefur verktaki út kvittun fyrir móttöku þess en ekki sérstakan sölureikning.

 

Virðingarfyllst

f.h. ríkisskattstjóra

Grétar Jónasson