Dagsetning                       Tilvísun
23. desember 1993                            595/93

 

Sala umboðsaðila á áfengi

Vísað er til bréfs yðar, dags. 22. júní 1993 þar sem álits ríkisskattstjóra er leitað á því hvort umbjóðanda yðar sé heimilt að endurselja áfengi sem hann hefur umboð fyrir með virðisaukaskatti og draga frá þann innskatt sem af kaupunum verða.

Í bréfi yðar kemur fram að áfengið er keypt í vínbúðum ÁTVR og síðan notað í boðum þar sem kynning hefur farið fram. Þá kemur það fram að hann hafi nú í hyggju að auka þessar kynningar með aukna veltu í huga.

Til svars erindi yðar vill ríkisskattstjóri taka það fram að samkvæmt reglugerð nr. 62/1989 sbr. reglugerð nr. 317/1991 eru auglýsingar á áfengi bannaðar. Í 2. gr. reglugerðarinnar segir m.a. að með auglýsingum sé átt við vörusýnishorn o.þ.h. Þá vill ríkisskattstjóri vekja athygli á því að samkvæmt 11. gr. laga nr. 82/1969, um áfengi, að heimild til þess að selja aftur áfengi er keypt hefur verið af Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins eða útsölum hennar hafa aðeins:

  1. Lyfsalar og læknar sem rétt hafa til lyfjasölu, þó eingöngu með áfengi sem talið er í lyfjaskrá og aðeins til lyfja.
  2. Veitingastaðir þeir, sem rétt hafa til veitingar áfengra drykkja, þó aðeins til neyslu á staðnum og með þeim takmörkunum, er veitingaleyfið og reglugerð ákveður.

Uppfylli umbjóðandi yðar fyrrgreind skilyrði þá fer um viðskipti hans eftir almennum reglum virðisaukaskattslaga, þ.e. áfengið á að endurselja með virðisaukaskatti og heimild er til þess að draga frá þann innskatt sem af kaupunum verða.

 

Virðingarfyllst

f.h. ríkisskattstjóra

Grétar Jónasson