Dagsetning                       Tilvísun
21. febrúar 1995                            669/95

 

Sameiginleg innkaup tveggja eða fleiri rekstraraðila

Vísað er til bréfs yðar dags. 30. nóv. 1994, þar sem óskað er eftir því að S verði leiðbeint um, hvernig fara beri með innskatt, þegar um sameiginleg innkaup tveggja eða fleiri aðila er að ræða, t.d. þegar hótel og veitingahús sameinast um að gefa út bækling um þjónustu sína.

Í bréfinu segir m.a.:

„Félagsmenn greiða þátttökugjald til S, en S greiðir fyrir hönnun, prentun, dreifingu og annan kostnað og hefur setið uppi með virðisaukaskattinn af því. Mönnum þykir að sjálfsögðu slæmt að geta ekki nýtt þennan skatt sem innskatt eða fengið hann endurgreiddan á einhvern hátt.“

Samkvæmt 1. gr. reglugerðar nr. 192/1993 um innskatt, má aðili í virðisaukaskatts-skyldum rekstri telja til innskatts þann virðisaukaskatt sem frá og með skráningardegi fellur á kaup hans á skattskyldum vörum og þjónustu til nota í rekstrinum, enda byggist innskattskrafa hans gagnvart ríkissjóði á skjölum og bókhaldi sem fullnægjandi er samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila. Í 4. gr. reglugerðar nr. 50/1993 eru talin upp þau atriði sem eiga að koma fram á reikningi. Í 2. tölul. segir að nafn og kennitala kaupanda eigi að koma fram.

Í 2. mgr. 15. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila, er að finna undantekningarreglu sem heimilar að færsla á innskatti vegna sameiginlegra innkaupa tveggja eða fleiri rekstraraðila, sem einn sölureikningur er gefinn út fyrir, byggist á greinargerð þar sem fram komi nafn og kennitala allra kaupenda, svo og skipting verðs og virðisaukaskatts. Einnig þarf að árita frumrit sölureiknings hver varðveiti það og skal ljósrit áritaðs sölureiknings liggja fyrir í bókhaldi allra aðila ásamt greinargerð, ef hún er gerð á sérstöku skjali.

Í tilviki því sem þér lýsið í bréfi yðar má líta svo á að hótel og veitingahús sameinist um að gefa út bækling og S sé framkvæmdaraðilinn, þ.e. sá sem sér um útgáfuna fyrir þeirra hönd. Þegar þannig háttar til er skilyrði að sölureikningur sé gefinn út á nafn og kennitölu virðisaukaskattsskylds aðila en ekki nafn og kennitölu S.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir