Dagsetning                       Tilvísun
3. feb. 1993                            446/93

 

Skattskylda opinberrar stofnunar.

Vísað er til bréfs yðar, dags. 28. desember 1992 um virðisaukaskatt af innheimtu Veðurstofu Íslands fyrir þjónustu við flugrekstraraðila í innanlandsflugi.

Samkvæmt 2. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, nær skattskylda til allrar vinnu og þjónustu, hverju nafni sem nefnist, sem ekki er sérstaklega undanþegin. Í 4. tl. 1. mgr. 3. gr. laga um virðisaukaskatt er sérstaklega tekið fram að ríki, bæjar- og sveitarfélögum og stofnunum eða fyrirtækjum þeirra beri skylda til að innheimta virðisaukaskatt og standa skil á honum í ríkissjóð, að því leyti sem þeir aðilar selji vörur eða skattskylda þjónustu í samkeppni við atvinnufyrirtæki.

Það er meginregla samkvæmt 2. gr. reglugerðar nr. 248/1990, um virðisaukaskatt af skattskyldri starfsemi opinberra aðila, að opinber þjónustufyrirtæki skuli greiða virðisaukaskatt af starfsemi sinni. Þau skulu innheimta virðisaukaskatt af heildarveltu sinni og skila honum í ríkissjóð að frádregnum innskatti af aðföngum. Samkvæmt 3. gr. reglugerðarinnar skulu fyrirtæki ríkis og sveitarfélaga, stofnanir þeirra eða þjónustudeildir, sem hafa það að meginmarkmiði að framleiða vörur eða inna af hendi þjónustu til eigin nota, greiða virðisaukaskatt af starfsemi sinni að því leyti sem hún er rekin í samkeppni við atvinnufyrirtæki.

Veðurstofa Íslands veitir upplýsingaþjónustu um veður sem ekki er rekin í samkeppni við atvinnufyrirtæki. Sé þannig um að ræða beinar greiðslur til Veðurstofunnar samkvæmt reikningi, þá ber stofnunni ekki samkvæmt ofanskráðu að innheimta virðisaukaskatt af þjónustu sinni. Sé gjaldið hins vegar innheimt í söluverði eldsneytis, þá telst það til skattverðs samkvæmt 1. tl. 2. mgr. 7. gr. laga um virðisaukaskatt.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Vala Valtýsdóttir.