Dagsetning                       Tilvísun
4. júní 1993                            478/93

 

Skattskylda opinberrar stofnunar

Vísað er til bréfs yðar, dags. 26. apríl 1993, þar sem óskað er í fyrsta lagi eftir áliti ríkisskattstjóra á því hvort Fjarskiptaeftirlit ríkisins skuli innheimta virðisaukaskatt af þjónustu sinni, og í öðru lagi hvort stofnunin eigi að greiða virðisaukaskatt af húsaleigu.

1) Virðisaukaskattur af þjónustu Fjarskiptaeftirlitsins

Til svars bréfi yðar skal tekið fram að ríki, bæjar- og sveitarfélögum og stofnunum eða fyrirtækjum þeirra er skylt að innheimta virðisaukaskatt og standa skil á honum í ríkissjóð, að svo miklu leyti sem þessir aðilar selja vörur eða skattskylda þjónustu í samkeppni við atvinnufyrirtæki, sbr. 4. tl. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Að áliti ríkisskattstjóra ber að skilja ákvæði þetta þannig að gjaldtaka ríkisstofnana vegna starfsemi sem þær hafa með höndum í krafti opinbers valds hafi ekki í för með sér skyldu til að innheimta virðisaukaskatt, enda er þá ekki á valdi annars en viðkomandi stofnunar að veita sambærilega þjónustu með sömu réttaráhrifum. Jafnframt felst í ákvæðinu að þjónusta sem opinber stofnun veitir án þess að henni sé það skylt skv. lögum er ekki skattskyld nema sambærilega þjónusta sé einnig veitt af atvinnufyrirtækjum.

Í bréfi yðar kemur fram, að 1. apríl s.l. hafi tekið gildi fyrsta sjálfstæða gjaldskrá Fjarskiptaeftirlitsins, en í henni sé tilgreint verð ýmissar þjónustu stofnunarinnar án virðisaukaskatts. Þá er spurt hvort einhvern þjónustulið gjaldskrárinnar eigi að inn-heimta með virðisaukaskatti.

Að álit ríkisskattstjóra er lögbundið eftirlit og leyfisveitingar Fjarskiptaeftirlitsins ekki í samkeppni við atvinnufyrirtæki. Samkvæmt því ber stofnuninni ekki að innheimta virðisaukaskatt af slíkri starfsemi. Önnur þjónustustarfsemi stofnunarinnar kann hins vegar að vera skattskyld eftir almennum reglum um sölu þjónustu í samkeppni við atvinnufyrirtæki, þ.e. ef sambærileg þjónusta er fáanleg hjá slíkum fyrirtækjum.

Ríkisskattstjóra er ekki kunnugt um raunverulega samkeppni Fjarskiptaeftirlits við atvinnufyrirtæki, enda verður þjónusta ríkisstofnana ekki skattskyld af því einu að möguleiki á samkeppni sé fyrir hendi. Þannig ber stofnuninni að útskatta þá vöru og þjónustu sem hún selur og má vita að er í raunverulegri samkeppni við atvinnufyrirtæki á hverjum tíma.

2) Virðisaukaskattur af húsaleigu Fjarskiptaeftirlitsins

Samkvæmt 8. tl. 3. mgr. 2. gr. virðisaukaskattslaga er fasteignaleiga undanskilin virðisaukaskatti. Þess ber þó að geta að hafi verið sótt um frjálsa skráningu vegna fasteignar, þá ber að útskatta leigugjöld af henni, sbr. II. kafla reglugerðar nr. 577/1989.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Bjarnfreður Ólafsson.