Dagsetning                       Tilvísun
8. mars 1995                            672/95

 

Skipasmíði – innskattur – skráning

Vísað er til bréfs yðar, dags. 3. mars 1995, þar sem óskað er eftir leiðbeiningum ríkisskattstjóra um innskattshæfi kostnaðar við smíði á víkingaskipi.

Fram kemur í bréfi yðar að tiltekinn aðili er að smíða víkingaskip og er hann skráður með skipasmíði sem aðalatvinnugrein rekstrar á virðisaukaskattsskrá. Hann hefur þegar gert samning við R um að leigja borginni skipið að smíði lokinni til skólasiglinga ákveðinn hluta úr ári næstu fimm árin. Þegar skólasiglingum sleppir ráðgerir hann að sigla með ferðamenn um sundin. Þá er tekið fram í bréfi yðar, að þar sem skipasmíði og útleiga skipa telst ekki til skattskyldrar veltu, en fólksflutningar eru undanþegnir virðisaukaskatti, er óskað eftir leiðbeiningum um hvernig fara skuli með innskatt vegna smíði skipsins.

Til svars bréfi yðar skal tekið fram að skipasmíði er skattskyld starfsemi og er framan-greindur aðili réttilega færður á virðisaukaskattsskrá vegna þeirrar atvinnu sinnar.

Samkvæmt 7. tölulið 1. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum, telst m.a. skipasmíði ekki til skattskyldrar veltu. Þannig má skráður aðili afhenda vöru og þjónustu, sem fellur undir 12. gr., án þess að reikna og innheimta útskatt. Engu að síður hefur hann rétt til endurgreiðslu innskatts vegna þeirra aðfanga sem varða afhendinguna.

Framangreindum aðila er því heimilt að telja að fullu til innskatts virðisaukaskatt af aðföngum er varða smíði víkingaskips í atvinnuskyni og breytir engu þar um þó hann hyggi síðar á að hafa með höndum blandaða starfsemi.

Í þessu sambandi er rétt að taka fram að aðili með blandaða starfsemi getur talið að fullu til innskatts virðisaukaskatt af aðföngum sem eingöngu eru keypt til nota við hinn skattskylda hluta starfsemi sinnar, en óheimilt er að telja til innskatts virðisaukaskatt af aðföngum sem eingöngu varða hinn skattfrjálsa hluta starfseminnar, sbr. 4. gr. reglugerðar nr. 192/1993, um innskatt. Þá er heimilt að telja virðisaukaskatt af aðföngum, sem keypt eru til nota bæði vegna skattskylds þáttar í starfsemi aðila og skattfrjáls þáttar (blönduð not), til innskatts í sama hlutfalli og sala skattskyldrar vöru og þjónustu (án virðisaukaskatts) hvers reikningsárs er af heildarveltu ársins, sbr. 1. mgr. 5. gr. innskattsreglugerðar.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Bjarnfreður Ólafsson