Dagsetning Tilvísun
21. ágúst 1997 820/97
Staðfesting viðtakanda á kynningaráfengi.
Að gefnu tilefni vill ríkisskattstjóri koma á framfæri eftirfarandi um staðfestingu viðtakanda þegar áfengi er afhent til kynningar:
Við afhendingu kynningaráfengis, sbr. bréf ríkisskattstjóra dags. 22. apríl sl. (tilv. 798/97), skal dreifingaraðili/framleiðandi sjá til þess að viðtakandi staðfesti móttöku á kynningaráfengi á sölureikningi.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Vala Valtýsdóttir.