Dagsetning                       Tilvísun
14. febrúar 1995                            668/95

 

Starfsemi erlends fyrirtækis hér á landi

Vísað er til bréfs yðar dags. 24. nóv. 1994 þar sem þér fyrir hönd umbjóðenda yðar, P og F, óskið álits embættisins á meðferð virðisaukaskatts vegna starfsemi erlends fyrirtækis hér á landi.

P. er b félag sem á í viðskiptum við F. Á árinu 1994 keypti P vélar á Íslandi til að vinna og frysta fisk. Vélunum var komið fyrir í húsnæði F, sem nýtir þær til starfsemi sinnar.

F. leigir vélarnar af P sem gefur út reikning fyrir leigufjárhæðinni í B í X og færir sem útflutningstekjur. P hefur ekki starfsemi hér á landi, utan ofangreindra leigutekna af vélunum.

Óskað er eftir áliti embættisins á því hvort viðskipti þessi falli undir 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 194/1990, um virðisaukaskatt af þjónustu fyrir erlenda aðila og af aðkeyptri þjónustu erlendis frá.

Til svars erindinu skal tekið fram að leiga á lausafjármunum, svo sem á vélum þeim sem fyrirspurnin varðar, er skattskyld þjónusta samkvæmt ákvæðum laga um virðisaukaskatt.

Umrædd starfsemi fellur ekki undir 2. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 194/1990 þar sem þjónustan telst keypt hér á landi þótt seljandi sé erlendur aðili.

Samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 194/1990, sbr. 1. tl. 1. mgr. 3. gr. virðisauka-skattslaga, eru erlendir aðilar sem selja hér á landi skattskylda þjónustu samkvæmt lögum um virðisaukaskatt skyldir til að tilkynna um starfsemi sína til skattstjóra, innheimta virðisaukaskatt af þessum viðskiptum og standa skil á honum í ríkissjóð.

Hafi erlent fyrirtæki, sem rekur skattskylda starfsemi hér á landi ekki starfsstöð hér á landi (útibú eða dótturfyrirtæki) hvílir skráningarskyldan á umboðsmanni þess eða öðrum aðila sem er í fyrirsvari fyrir það, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 3. gr. laga um virðisaukaskatt.

Erlent fyrirtæki sem hefur keypt eða flutt inn í eigin nafni lausafjármuni í þeim tilgangi að leigja þá út hérlendis er skráningar- og skattskylt hér á landi samkvæmt framansögðu. Þegar þannig hagar til er talið að leigustarfsemi fyrirtækisins sé innt af hendi hérlendis.

Í lok bréfs yðar upplýsið þér að P hafi ekki fengið endurgreiddan innskatt af kaupverði greindra véla, en hyggist sækja um endurgreiðslu í samræmi við ákvæði reglugerðar nr. 247/1991, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja.

Viðskipti P. falla ekki undir reglugerð 247/1991, þar sem reglugerðin tekur til atvinnustarfsemi sem aðili rekur erlendis en P er skráningarskyldur hér á landi samkvæmt því sem segir fyrr í þessu bréfi.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir