Dagsetning Tilvísun
8. nóvember 1993 568/93
Tollfrjáls svæði
Vísað er til bréfs yðar, dags. 18. október 1993, þar sem spurt er um innheimtu virðisaukaskatts á tollfrjálsu svæði (frísvæði).
Í bréfi yðar segir m.a.:
„Við förum þess hér með á leit við yður að þér veitið oss heimild til að undanþiggja álagningu virðisaukaskatts á þjónustu, sem unnin er á frísvæði fyrir erlent fyrirtæki, sem er í samræmi við gildandi reglur á frísvæðum á meginlandinu….“.
Til svars bréfinu tekur ríkisskattstjóri fram að ákvæði IX. kafla tollalaga nr. 55/1987 fjalla um frísvæði, en í frísvæði felst að heimilt er að flytja þangað vörur án greiðslu aðflutningsgjalda eða gegn endurgreiðslu slíkra gjalda. Samkvæmt 92. gr. laganna geta vörur, sem geymdar eru á frísvæði, hlotið þar aðvinnslu vegna verslunar með þær, m.a. til að auka gæði þeirra og viðskiptavirði.
Ákvæði tollalaga gilda um álagningu og innheimtu virðisaukaskatts við innflutning vöru, sbr. 2. mgr. 37. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, þ.m.t. þegar vara er flutt inn á frísvæði. Þannig gildir sama regla um virðisaukaskatt og önnur gjöld sem til falla við innflutning að þessu leyti.
Fyrirtæki sem starfar á frísvæði, t.d. við aðvinnslu vöru sem þar er geymd, er skráningarskylt samkvæmt 5. gr. virðisaukaskattslaga, ef það hefur með höndum starfsemi sem fellur undir skattskyldusvið þeirra laga. Almennar reglur laganna gilda um sölu innlendra aðila á vöru og þjónustu til fyrirtækis með rekstur á frísvæði. Seljanda bæri að telja slíka sölu til skattskyldrar veltu sinnar og skráður kaupandi fengi virðisaukaskatt af viðskiptunum endurgreiddan sem innskatt eftir venjulegum reglum þar um.
Til að fyrirtæki geti haldið sölu á þjónustu til erlendra aðila, sem unnin er á frísvæði, utan skattskyldrar veltu, þá verður þjónustan að flokkast undir ákvæði 12. gr. virðisaukaskattslaga eða 2. gr., sbr. 3. gr., reglugerðar nr. 194/1990, um virðisaukaskatt af þjónustu fyrir erlenda aðila og af aðkeyptri þjónustu erlendis frá. Sérstök athygli er vakin á 3. tl. 1. mgr. 12. gr. virðisaukaskattslaga, en samkvæmt því ákvæði er vinna við vöru á kostnað erlends aðila undanþegin skattskyldri veltu þegar fyrirtækið, sem annast vinnuna, flytur vöruna út að vinnu lokinni. Ákvæðið á ekki við um vinnu á kostnað innlends aðila þótt hann hyggist flytja vöruna úr landi.
Það skal að lokum tekið fram að ríkisskattstjóri hefur enga heimild til að veita undan-þágur frá framangreindum reglum virðisaukaskattslaga.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra
Bjarnfreður Ólafsson