Dagsetning                       Tilvísun
1. apríl 1996                            730/96

 

Útgáfa afreikninga afurðastöðva til bænda vegna innlagðra afurða

Vísað er til bréfs yðar, dags. 29. janúar 1996, þar sem spurst er fyrir um hvort afurðastöðvum sé ekki skylt að gefa út 100% afreikning við afhendingu hins selda, óháð því hvenær varan er greidd.

Meginregla virðisaukaskattslaga er að tímamark skattskyldu er tengt afhendingu vöru eða skattskyldrar þjónustu. Það er afhending hins selda sem ræður því til hvaða uppgjörstímabils skattskylda varan telst. Reglan kemur fram í 1. mgr. 13. gr. laganna, en þar segir:

“Skattskyld velta á hverju uppgjörstímabili sbr. 24. gr., telst heildarskattverð allra vara sem afhentar hafa verið, svo og heildarskattverð allrar skattskyldrar vinnu og þjónustu sem innt hefur verið af hendi á tímabilinu.”

Ekki skiptir máli hvernig eða hvenær hið selda er greitt. Jafnvel þótt seljandi hafi lánað allt söluverðið telst salan til skattskyldrar veltu á því tímabili sem afhending fer fram.

Samkvæmt framansögðu ber seljanda að gefa úr reikning þegar afhending vöru fer fram. Á sama hátt ber kaupanda í þessu tilviki að gefa út afreikning þegar vara er móttekin sbr. 3. mgr. 21. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, og 6. gr. reglugerðar nr. 50/1993, um bókhald og tekjuskráningu virðisaukaskattsskyldra aðila.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir