Dagsetning                       Tilvísun
22. desember 1993                            592/93

 

Útgáfu- og kennslustarfsemi

Vísað er til bréfs yðar, dags. 26. nóvember 1993, þar sem lagðar eru fram nokkrar spurningar varðandi útgáfu- og kennslustarfsemi stofnunarinnar.

Eftirfarandi spurningar eru lagðar fram í bréfi yðar:

1.a       Fræðsludeild stofnunarinnar hefur verið að selja námskeiðspakka sem heitir G – í þína þjónustu. Þessi pakki er ætlaður fyrir starfsmenn fyrirtækja og stofnana. Námsefnið er selt sem myndbönd, lesbækur og vinnubækur ásamt handbókum. Verðlagning námsefnisins fer eftir fjölda starfsmanna, sem þátt taka í námskeiðinu, ásamt sérstöku grunngjaldi. Kennsla námsefnisins er í höndum starfsmanna ráðgjafafyrirtækja sem hafa verið sérstaklega þjálfaðir til að kenna námsefnið.

Svar:   Mennta- og kennslustarfsemi sem er undanþegin virðisaukaskatti er sú starfsemi sem fellur undir undanþáguákvæði 3. tl. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Samkvæmt þessu er rekstur skóla og menntastofnana, svo og ökukennsla, flugkennsla og danskennsla undanþeginn virðisaukaskatti. Í greinargerð með frumvarpi til laga um virðisaukaskatt er tekið fram, að til reksturs skóla og menntastofnana teljist öll venjuleg skóla- og háskólakennsla, fagleg menntun, endurmenntun og önnur kennslu- og menntastarfsemi.

Ekki verður betur séð, en að framangreint námskeið teljist liður í fagmenntun áttakenda og því undanþegin skattskyldu. Við mat á því hvenær um fagmenntun er að ræða er lögð áhersla á að kennslan miði að því að afla, viðhalda eða auka þekkingu eingöngu vegna atvinnu þátttakenda.

1.b       Fræðsludeildin selur einnig ýmis önnur námsgögn. Oft eru þetta bækur sem hafa verið unnar hjá stofnuninni og kenndar á námskeiðum. Þessar bækur eru yfirleitt í möppuformi en hafa ekki verið innbundnar sérstaklega. Á námskeiðum eru námsgögnin hluti af námskeiðiðgjaldinu. Hins vegar eru námsgögnin oft seld sérstaklega og yfirleitt til skóla eða nemenda sem kaupa þau til nota í sínu námi. Spurt er hvort leggja eigi á þessi gögn virðisaukaskatt, og ef svo er, þá hvort hann eigi að vera 14% eða 24,5%.

Svar:               Ef námsefni vegna undanþeginnar kennslu er afhent án sérstaks endurgjalds hefur verið talið rétt að líta á það sem þátt í hinni afhentu þjónustu og þá án virðisaukaskatts.

Undanþágan tekur hins vegar ekki til vöru sem afhent er gegn sérstakri greiðslu, hvort sem varan er í tengslum við undanþegið námskeið eða ekki. Þar sem þér virðist vera að selja kennslubækur á íslenskri tungu, þá ber yður að innheimta 14% virðisaukaskatt af þeirri sölu.

2. Stofnunin selur ýmsar bækur sem hún hefur gefið út. Sumar bækurnar eru í möppum eða sem fjölrit og hefur þá vaknað sú spurning hvort rangt sé að selja þær með 14% virðisaukaskatti.

Svar:   Yður ber réttilega að innheimta 14% virðisaukaskatt af þessum bókum eða fjölritum af bókum, enda séu þær skrifaðar á íslensku.

3. Stofnunin fær ýmsa styrki til að vinna að ákveðnum verkefnum. Um getur verið að ræða rannsóknarverkefni, vöruþróunarverkefni og upplýsingaöflun til fram-fara fyrir íslenskan iðnað. Helstu styrktaraðilar eru iðnaðarráðuneytið, Rannsóknarráð ríkisins, Iðnlánasjóður og ýmis fyrirtæki.

Svar:   Ef styrkir þessir renna til verkefna stofnunarinnar sem eru í samkeppni við atvinnufyrirtæki og ljóst er að viðkomandi styrktaraðili er að kaupa þjónustu á einhvern hátt, þá ber að innheimta virðisaukaskatt af þeim styrkjum. Hins vegar virðist hinn styrkta starfsemi yðar ekki vera í samkeppni við atvinnufyrirtæki og þá þegar af þeirri ástæðu ber eigi að innheimta virðisaukaskatt af þeim fjár-framlögum.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Bjarnfreður Ólafsson