Dagsetning                       Tilvísun
27. desember 1993                            600/93

 

Útleiga orlofshúsa stéttarfélags

Vísað er til bréfs yðar, dags. 22. september 1993, þar sem óskað er eftir umsögn ríkisskattstjóra á skattalegri meðferð „annarrar gistiþjónustu“ samkvæmt 2. tl. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, með síðari breytingum.

Í bréfi yðar er eftirfarandi tekið fram:

„Heyrst hefur að túlkun embættisins á orðunum „og önnur gistiþjónusta“ sé t.d. útleiga orlofshúsa, og hvers konar gistiþjónusta á vegum ferðaþjónustu bænda. Gerir embættið athugasemd við þann skilning (félagsins) að orlofshús stéttarfélaga séu undanþegin virðisaukaskatti?“

Til svars bréfi yðar skal tekið fram, að samkvæmt 8. tl. 3. mgr. 2. gr., sbr. 2. tl. 2. mgr. 14. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, ber útleiga hótel- og gistiherbergja og útleiga tjaldstæða, svo og önnur gistiþjónusta þegar leigt er til skemmri tíma en eins mánaðar 14% virðisaukaskatt frá og með 1. janúar 1994.

Stéttarfélög eru skattskyld vegna sölu sinnar á skattskyldri vöru og þjónustu sem fram fer í atvinnuskyni og í samkeppni við atvinnufyrirtæki, enda þótt þau selji aðeins félagsmönnum sínum, sbr. 1. og 2. tl. 1. mgr. 3. gr. virðisaukaskattslaga. Við mat þess hvort starfsemi er rekin í atvinnuskyni er aðallega miðað við hvort tilgangur starfseminnar sé að skila hagnaði af rekstri. Starfsemi telst ekki rekin í atvinnuskyni ef samtals tekjur vegna hennar eru alltaf eða nær alltaf lægri en kostnaður við aðföng sem keypt eru með virðisaukaskatti vegna starfseminnar.

Samkvæmt ofanrituðu hvílir sú skylda á stéttarfélögum, sem stunda sölu eða leigu á vöru eða þjónustu í atvinnuskyni og í samkeppni við atvinnufyrirtæki að innheimta virðisaukaskatt af endurgjaldi fyrir umrædda þjónustu og standa skil á honum í ríkissjóð, enda nemi samtals skattskyld sala a.m.k. 185.200 kr. á ári (miðað við byggingarvísitölu 1. janúar 1993).

Leiga stéttarfélaga á orlofshúsum, sem telst vera í atvinnuskyni gerð samkvæmt ofanrituðu, ber 14% virðisaukaskatt samkvæmt 8. tl. 3. mgr. 2. gr., sbr. 2. tl. 2. mgr. 14. gr., sbr. 1. og 2. tl. 1. mgr. 3. gr. virðisaukaskattslaga. Sé hún aftur á móti ekki gerð í atvinnuskyni, þá ber eigi að innheimta virðisaukaskatt af gistiþjónustunni og jafnframt nýtur hún eigi innskattsfrádráttar.

Samkvæmt upplýsingum ríkisskattstjóra virðist sala stéttarfélags yðar á gistiþjónustu til eigin félagsmanna eigi vera í atvinnuskyni gerð.

Að öðru leyti er vísað í meðfylgjandi bréf ríkisskattstjóra, dags. 27. desember 1993, um fasteignaleigu og gistiþjónustu.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Bjarnfreður Ólafsson