Dagsetning Tilvísun
20. des. 1990 180/90
Viðgerðar- og viðhaldsvinna við skip og loftför.
Viðgerðar- og viðhaldsvinna við skip og loftför er virðisaukaskattsskyld starfsemi. Þeir, sem hafa fólksflutninga með höndum, eru skattskyldir vegna eigin vinnu við viðgerðir og viðhald, sbr. 2. gr. reglug. nr. 562/1989, um virðisaukaskatt af eigin þjónustu og úttekt til eigin nota innan óskattskyldra fyrirtækja og stofnana. Þessum aðilum ber skv. 4. gr. reglugerðarinnar að tilkynna skattstjóra um skattskylda starfsemi sína.
Viðgerðar- og viðhaldsvinna við skip og loftför er undanþegin skattskyldri veltu, sbr. 7. tölul. 1. mgr. 12. gr. laga um virðisaukaskatt. Því eru skipafélög og flugfélög undanþegin skyldu til að reikna og skila útskatti af eigin viðgerðar- og viðhaldsvinnu. Þau njóta innskattsfrádráttar vegna þessarar starfsemi samkvæmt almennum reglum laga um virðisaukaskatt ef hún fer fram í sérstakri þjónustudeild, sbr. l. tölul. 3. gr. nefndrar reglugerðar. Þjónustudeild skal uppfylla bókhaldsskilyrði 5. og 6. gr. reglugerðarinnar, þ.e. vera aðgreind í bókhaldi frá öðrum þáttum starfseminnar og haga skráningu á afhendingu vöru og þjónustu með fyrirfram skipulögðum hætti. Fari starfsemi ekki fram í sérstakri þjónustudeild gilda ákvæði 2. tölul. 3. gr. reglugerðarinnar um uppgjör virðisaukaskatts og er þá ekki um innskattsfrádrátt að ræða.
Í tilkynningu til skattstjóra skal koma fram númer og heiti bókhaldsreikninga þar sem tekjur og gjöld vegna hinnar skattskyldu viðgerðar- og viðhaldsvinnu eru færð.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Ólafur Ólafsson.