Dagsetning Tilvísun
30. september 1993 554/93
Virðisaukaskattsskylda vegna útsýnisflugs.
Vísað er til bréfs yðar dags. 10. 09. 93. þar sem leitað er álits ríkisskattstjóra á skattskyldu vegna útsýnisflugs.
Til svars bréfi yðar skal tekið fram, að skv. l. tl. 2. mgr. 14. gr. laga um virðisaukaskatt, nr. 50/1988 sbr. 50. gr., sbr. 62. gr. laga nr. 111/1992 um breytingar í skattamálum þá koma fólksflutningar að frátöldum leiguakstri fólksbifreiða til með að bera 14% virðisaukaskatt frá og með l. janúar 1994.
Ríkisskattstjóri telur að útsýnisflug falli undir fyrrgreint ákvæði l. tl. 2. mgr. 14. gr. laganna og innheimta eigi 14% virðisaukaskatt af útsýnisflugi.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Grétar Jónsson