Dagsetning                       Tilvísun
17. mars 1995                            673/95

 

Virðisaukaskattur á námskeiðsgjöld

Vísað er til bréfs yðar dags. 10. mars. s.l. þar sem þér óskið eftir úrskurði ríkis- skattstjóra á því, hvort innheimta beri virðisaukaskatt af námskeiði í tísku- og ljósmyndaförðun.

Í bréfi yðar er námskeiðinu lýst þannig að þar séu kennd undirstöðuatriði förðunar, litasamsetning, tækni og tíska. Einnig að það sé samsvarandi kennslu sem er á snyrtibraut F og samsvari 110 tíma námi. Með bréfinu fylgdi nánari lýsing á námskeiðinu.

Samkvæmt 3. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er rekstur skóla og menntastofnana undanþeginn virðisaukaskatti. Í greinargerð með frumvarpi til laganna kemur fram að með orðalaginu “rekstur skóla og menntastofnana” sé átt við alla venjulega skóla- og háskólakennslu, faglega menntun, endurmenntun og aðra kennslu- og menntastarfsemi sem hefur unnið sér fastan og almennan sess í skólakerfinu.

Það er álit ríkisskattstjóra að námskeið það er þér lýsið í bréfinu falli undir þá skilgreiningu, enda hefur sambærilegt nám verið til boða í F í allmörg ár og beri því ekki að innheimta virðisaukaskatt af námskeiðs-gjöldum.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir