Dagsetning Tilvísun
10. október 1996 754/96
Virðisaukaskattur – aðgangur að íbúðum erlendis.
Vísað er til símbréfs yðar mótt. hjá ríkisskattstjóra 17. september 1996, þar sem þér óskið m.a. eftir áliti ríkisskattstjóra á því hvort félagsgjald (inngöngugjald/stofngjald) sem veitir greiðandanum aðgang að orlofsíbúð á Spáni eina viku á ári, sé virðisaukaskattsskylt hérlendis. Spyrjið þér einnig hvort máli skipti hvort reikningar vegna félagsgjaldsins kæmu beint frá félaginu sjálfu eða frá íslenska þjónustufyrirtækinu.
Það er álit ríkisskattstjóra að umrætt gjald sé í raun ekki félagsgjald, heldur fyrirframgreiðsla fyrir aðgang að íbúð erlendis og þjónustu sem veitt er í tengslum við hana. Ber því ekki að innheimta virðisaukaskatt af greiðslu þessari hér á landi, sbr. 1. tl. 1. mgr. 12. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Skiptir ekki máli í því sambandi hvort reikningar vegna gjalds þessa koma beint frá hinu erlenda fyrirtæki eða frá íslenska þjónustufyrirtækinu.
Þér spyrjið enn fremur hvort starfsemi íslenska fyrirtækisins (umboðsaðilans) sé virðisaukaskattsskyld og hvort máli skipti hvort félagsgjaldið er innheimt hérlendis eða af hinu erlenda félagi, hvort umboðslaun íslenska fyrirtækisins séu skattskyld ef reikningar koma til félagsmanna beint frá hinu erlenda félagi.
Starfsemi hins íslenska fyrirtækis er virðisaukaskattsskyld, þ.e. þjónustan er veitt hérlendis. Skiptir ekki máli hvort reikningar til félagsmanna koma beint frá hinu erlenda fyrirtæki eða íslenska þjónustufyrirtækinu. Samkvæmt framansögðu skal innheimta virðisaukaskatt af greiðslum fyrir veitta þjónustu hér á landi. Er hinum erlenda aðila mögulegt að fá virðisaukaskattinn endurgreiddan samkvæmt ákvæðum reglugerðar nr. 288/1995, um endurgreiðslu virðisaukaskatts til erlendra fyrirtækja, að því marki sem aðili er stundaði hliðstæða starfsemi hér á landi gæti talið virðisaukaskatt vegna þjónustunnar til innskatts.
Að lokum spyrjið þér hvort innskattur af rekstrarkostnaði íslenska félagsins sé frádráttarbær. Samkvæmt 1. mgr. 16. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, er heimilt að telja til innskatts virðisaukaskatt af aðföngum sem eingöngu varða sölu skattaðila á vörum og skattskyldri þjónustu. Er hinu íslenska félagi því heimill innskattsfrádráttur vegna rekstrarkostnaðar er eingöngu varðar hina virðisaukaskattsskyldu starfsemi.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra
Margrét Steinarsdóttir