Dagsetning                       Tilvísun
8. október 1998                            882/98

 

Virðisaukaskattur af óefnislegum réttindum/sala á afsetningarétti

Vísað er til bréfs yðar, dags. 26. ágúst 1998, þar sem spurst er fyrir um, hvort innheimta beri virðisaukaskatt af afsetningarrétti.

Til svars erindinu skal tekið fram að skattskylda samkvæmt lögum nr. 50/1988, um virðisaukaskatt, nær til hvers konar vöru og verðmæta, svo og vinnu og þjónustu, nema hún sé sérstaklega undanþegin í lögunum. Framsal óefnislegra réttinda er meðal þeirra viðskipta sem sem skattskyld eru samkvæmt þessum meginreglum. Gildir það að mati ríkisskattstjóra m.a um sölu á framleiðslurétti, sem er ákveðinn eftir verðmæti eða magni framleiddra eininga (t.d framleiðslurétti í landbúnaði), á hagnýtingu einkaleyfa og viðskiptavild.

Samkvæmt ofanrituðu er því sala áafsetningarrétti, þ.e. sölurétti eða loforði um sölu á ákveðnu magni af afurðum, skattskyld skv. virðisaukaskattslögum.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir