Dagsetning                       Tilvísun
22. desember 1993                            593/93

 

Virðisaukaskattur af starfsemi opinberra aðila

Vísað er til bréfs yðar, dags. 24. nóvember 1993, hvort innheimta beri virðisaukaskatt af tiltekinni staðlastarfsemi opinbers aðila.

Í bréfi yðar kemur fram að staðlastarfsemi sem áður var í umsjá Iðntæknistofnunar hefur verið falin S skv. lögum nr. 97/1992. Hins vegar hafi verið gerður verksamningur milli þessara opinberu aðila, þar sem iðntæknistofnun tekur að sér ýmsa framkvæmd varðandi staðlastarfsemina.

Til svars bréfi yðar skal tekið fram, að opinberir aðilar, þ.e. ríki og sveitarfélög, og stofnanir og fyrirtæki þeirra, eru skráningarskyldir að því leyti sem þessir aðilar selja skattskylda vöru og þjónustu í samkeppni við atvinnufyrirtæki, sbr. 4. tl. 1. mgr. 3. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt. Þar sem umrædd þjónusta Iðntæknistofnunar samkvæmt samningi við S virðist ekki vera seld í samkeppni við atvinnufyrirtæki, þá er hún eigi virðisaukaskattsskyld.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Bjarnfreður Ólafsson