Dagsetning                       Tilvísun
17. apríl 1997                            795/97

 

Virðisaukaskattur af þóknun lögmanna í innheimtumálum

I.

Í bréfi ríkisskattstjóra til L dags. 17. janúar 1990, um virðisaukaskatt af lögfræðiþjónustu, kemur m.a. fram að ekki megi tilgreina virðisauka­skatt í kröfubréfi gagnvart skuldara, hvorki sérstaklega né gefa á annan hátt til kynna að virðisaukaskattur sé innifalinn í fjárhæð, enda getur skuldari aldrei átt innskattsfrádráttarrétt vegna þessa (aðeins þjónustukaupi (kröfuhafi) getur átt hann).

Þrátt fyrir þetta hefur nokkuð borið á því að lögmenn tilgreini virðisaukaskatt í kröfubréfum gagnvart skuldara og margir skuldarar talið sig geta innskattað á grundvelli þess.

II.

Í téðu bréfi ríkisskattstjóra kemur fram að í innheimtumálum þurfi sérstaklega að hafa í huga að innskattsfrádráttarréttur valdi því að virðisaukaskattur myndi ekki kostnað hjá virðisaukaskattsskyldum þjónustukaupa. Í innheimtumálum þurfi því að greina á milli þess hvort krafa hafi stofnast vegna 1) virðisaukaskattsskyldrar starfsemi þjónustu­kaupa eða 2) óskattskyldrar starfsemi hans.

Um 1) Þegar innheimtukrafa varðar virðisaukaskattsskylda starfsemi þjónustu­kaupa er rétt að sú fjárhæð sem lögmaður fyrir hönd þjónustukaupa krefur skuldara um til lúkningar á málskostnaði sé án virðisaukaskatts.

Um 2) Í öðrum tilvikum hefur þjónustukaupi sjálfur kostnað af þeim virðisaukaskatti sem fellur á innheimtuþjónustuna og verður að fá hann bættan af skuldara. Þ.e.a.s. lögmaður innheimtir virðisaukaskatt gagnvart slíkum þjónustu­kaupa og endurkrefur skuldara um þann kostnað fyrir hönd þjónustu­kaupans.

III.

Í umræddu bréfi ríkisskattstjóra kemur fram að ekki megi tilgreina virðisaukaskatt í kröfubréfi gagnvart skuldara, hvorki sérstaklega né gefa á annan hátt til kynna að virðisaukaskattur sé innifalinn í fjárhæð, eins og fram kom undir I. lið að framan.

Þrátt fyrir þetta getur ríkisskattstjóri fallist á að þegar skuldari er endurkrafinn um kostnað vegna virðisaukaskatts, sbr. lið II. 2), komi fram í kröfubréfi gagnvart honum að kostnaður vegna virðisaukaskatts sé innifalinn í innheimtukostnaði, enda komi skýrt fram að skuldari geti ekki talið hann til innskatts.

Þetta gæti t.d. komið fram með eftirgreindum hætti: Kostnaður vegna virðisaukaskatts er innifalinn í innheimtukostnaði. Skuldara er með öllu ­óheimilt að telja til hann innskatts.

Kostnaður vegna virðisaukaskatts má ekki koma fram sem sérgreind fjárhæð í innheimtubréfi.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Ingibjörg Ingvadóttir

 

Afrit: L