Dagsetning Tilvísun
14. jan. 1991 202/91
Virðisaukaskattur af þóknun umboðsmanns blaða og tímarita.
Vísað er til bréfs yðar, dags. 19. mars sl., þar sem óskað er upplýsinga ríkisskattstjóra um meðferð virðisaukaskatts af umboðslaunum vegna blaðasölu, tímaritasölu og happdrættismiðasölu.
Um þóknun söluaðila dagblaða og tímarita.
Samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum eru dagblöð og tímarit seld í söluturnum og verslunum í umsýslusölu. Útgefandi afhendir tiltekinn fjölda eintaka til söluaðila sem síðan skilar óseldum eintökum. Söluaðili fær ákveðinn hundraðshluta af útsöluverði seldra eintaka í sölulaun. Þannig fer salan fram í nafni söluaðila en fyrir reikning og áhættu útgefandans.
Í grundvallaratriðum gera lög um virðisaukaskatt engan mun á umsýslusölu og almennri endursölu (sölu sem fram fer fyrir reikning endurseljanda. Sala eða afhending á vöru sem seld er í umsýslusölu telst til skattskyldrar veltu skráðs aðila, sbr. 2. mgr. 11. gr. laganna. Skattverð miðast við heildarsöluverð hins selda, sbr. almennar reglur um skattverð í 7. gr. laganna. Þannig er ekki um það að ræða í viðskiptum umsýsluveitanda og umsýslumanns að virðisaukaskattur reiknist sérstaklega af söluþóknun (andstætt því sem gildir um þjónustu miðlara, t.d. fasteignasala heldur er hún hluti af skattverði umsýslumanns. Afhending vöru frá umsýsluveitanda til umsýslumanns telst og til skattskyldrar veltu skráðs umsýsluveitanda. Hins vegar á hann val um það hvort hann telur söluna til skattskyldrar veltu við afhendingu eða þegar uppgjör fer fram við umsýslumann, sbr. 4. mgr. 13. gr., enda gæti hann skilyrða þess ákvæðis.
Sala dagblaða og tímarita, jafnt í áskrift sem lausasölu, er undanþegin skattskyldri veltu, sbr. 9. tölul. 1. mgr. 2. gr. virðisaukaskattslaga. Ákvæðið tekur einnig til viðskipta sem fram fara í umsýslusölu, sbr. þær almennu reglur sem reifaðar eru hér að framan.
Samkvæmt framansögðu krefja söluaðilar dagblaða og tímarita útgefendur ekki sérstaklega um virðisaukaskatt vegna sölulauna.
Um þóknun söluaðila happdrættismiða.
Happdrætti og getraunastarfsemi eru undanþegin virðisaukaskattsskyldu, sbr. 11. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt. Undanþágan tekur einnig til þess hluta söluandvirðis happdrættismiða o.s.frv. sem rennur til söluaðila, þ.e. söluþóknunar. Söluaðilar innheimta því ekki virðisaukaskatt vegna sölunnar af útgefendum happdrættismiða.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Ólafur Ólafsson.