Dagsetning Tilvísun
27. ágúst 1993 520/93
Virðisaukaskattur af útgáfustarfsemi
Vísað er til bréfs yðar, dags. 30. júní 1993, þar sem óskað er eftir áliti fjármálaráðuneytis á því hvort handbækur, sem ráðuneytið gaf út í tengslum við aðskilnað dómsvalds og umboðsvalds í héraði, beri 14% virðisaukaskatt. Bréf yðar var framsent af fjármálaráðuneytinu þann 24. ágúst s.l. til afgreiðslu hjá embætti ríkisskattstjóra.
Til svars bréfi yðar skal tekið fram að útgáfa prentvarnings er skráningarskyld starfsemi ef útgáfan er talin vera í atvinnuskyni. Þó er starfsemi ekki skráningarskyld ef samanlagðar tekjur útgefanda af sölu skattskyldrar vöru og þjónustu, þ.m.t. tekjur af auglýsingum og sölu ritsins, eru lægri en 185.200 kr. á ári (miðað við byggingarvísitölu 1. janúar 1993). Það fer svo eftir eðli prentvarnings hvort hann ber 14% eða 24,5% virðisaukaskatt.
Við mat á því hvenær útgáfa telst vera í atvinnuskyni er aðallega miðað við það hvort tilgangur starfsemi er að skila hagnaði af rekstri eða ekki. Útgáfa telst ekki vera í atvinnuskyni ef samanlagðar auglýsingatekjur og tekjur af sölu eru alltaf eða nær alltaf lægri en kostnaður við aðföng sem keypt eru með virðisaukaskatti til útgáfunnar, þ.m.t. prentkostnaður. Gefi aðili út fleiri en eitt rit er miðað við heildarafkomu fyrirtækisins.
Opinberir aðilar, þ.e. ríki og sveitarfélög, og stofnanir og fyrirtæki þeirra, eru skráningarskyldir að því leyti sem þeir selja vörur eða skattskylda þjónustu í samkeppni við atvinnufyrirtæki. Ríkisskattstjóri lítur svo á að sala opinberra aðila á ritum, sem þeir gefa út, sé aðeins skráningarskyld ef þessar vörur eru seldar með hagnaði. Skráningarskylda er ekki talin vera fyrir hendi ef tekjur af þessari starfsemi eru alltaf eða nær alltaf lægri en kostnaður við aðföng sem keypt eru með virðisaukaskatti til starfseminnar.
Útgáfustarfsemi yðar virðist vera í samkeppni við atvinnufyrirtæki. Ef tilgangur starfsemi er jafnframt að skila hagnaði, þá er hún skráningarskyld. Sérútgáfur laga og reglna, svo og staðlar, leiðbeiningar og tilkynningar frá opinberum aðilum, sem gefnar eru út í hagnaðarskyni og í samkeppni við atvinnufyrirtæki, bera 24,5% virðisaukaskatt. Lægri prósentan, 14% virðisaukaskattur, tekur þó til samstæðna tveggja eða fleiri slíkra rita sem bundin eru saman í eitt hefti. Þannig ber útgáfustarfsemi yðar 14% virðisaukaskatt, ef tilgangur hennar er að skila hagnaði – þ.e. ef hún er í atvinnuskyni gerð.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra
Bjarnfreður Ólafsson.