Dagsetning                       Tilvísun
3. mars 1995                            671/95

 

Virðisaukaskattur – afsteypur af listaverkum

Vísað er til bréfs yðar, dags. 22. febrúar sl., þar sem óskað er álits ríkisskattstjóra á því hvort innheimta beri virðisaukaskatt af sölu L á afsteypum af listaverkum.

Í bréfi yðar kemur fram að afsteypur hafi verið gerðar af fáeinum listaverkum og hagnaðurinn af sölunni renni í sérstakan sjóð, Afsteypusjóð L. Tekjum afsteypusjóðs hefir einkum verið varið til að kosta afsteypur af listaverkum og til að koma listaverkum úr safninu fyrir í garðinum umhverfis safnbygginguna.

Jafnframt kemur fram að forráðamenn safnsins hafi litið svo á að um væri að ræða eðlilega kynningarstarfsemi safnsins og safnið væri ekki virðisaukaskattsskylt að því er hana varðar og því til stuðnings er vísað til 4. tölul. 3. mgr. 2. gr. laga um virðisaukaskatt með áorðnum breytingum.

Í 4. tölul. 3. mgr. 2. gr. virðisaukaskattslaga kemur fram að starfsemi safna svo sem listasafna sé undanþegin virðisaukaskatti. Ákvæðið felur í sér að ekki er lagður virðisaukaskattur á aðgangseyri að listasöfnum.

Samkvæmt framansögðu fellur sala á afsteypum á listaverkum í eigu listasafns ekki undir framangreint ákvæði laganna og ber að innheimta virðisaukaskatt af sölunni svo framarlega sem söluverð er hærra en framleiðslukostnaður. Við skil er heimilt að draga greiddan virðisaukaskatt (innskatt) vegna framleiðslukostnaðar frá innheimtum virðisaukaskatti (útskatti) af sölu, sbr. 16. gr. laganna.

Þrátt fyrir framangreint eru aðilar sem selja skattskylda vöru eða þjónustu fyrir minna en 100.000 kr. á ári (frá 1. jan 1995 kr. 194.400) undanþegnir virðisaukaskattsskyldu, sbr. 3. tölul. 4. gr. virðisaukaskattslaga.

Til frekari upplýsinga skal jafnframt tekið fram að sala umræddra afsteypa getur ekki heldur fallið undir undanþáguákvæði 2. tölul. 4. gr. laganna en þar segir að sala listamanna á eigin verkum sé undanþegin virðisaukaskatti enda falli þau undir tollskrárnúmer 9701.1000-9703.0000. Í fyrsta lagi er það skilyrði sett fyrir undanþágunni að um sé að ræða sölu listamannsins sjálfs (eða sölu á listmunauppboði) og í öðru lagi þá falla undir tollskrárnúmerin einungis frumverk en ekki fjöldaframleiddar endurgerðir af listaverkum eða venjulegar handiðnaðarvörur sem hafa einkenni verslunarvöru.

Samkvæmt framansögðu uppfyllir umrædd sala hvorki skilyrði fyrir undanþágu samkvæmt þessu ákvæði né öðrum undanþáguákvæðum laganna og ber því að innheimta virðisaukaskatt af sölu afsteypa með vísan til þess sem að framan greinir.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra,

Vala Valtýsdóttir.