Dagsetning                       Tilvísun
10. september 1996                            750/96

 

Virðisaukaskattur – farandsýning á risaeðlum.

Vísað er til bréfs yðar dags. 6. september 1996, þar sem farið er fram á að ríkisskattstjóri skeri úr um hvort aðgangseyrir að risaeðlusýningu sem haldin verður í K sé virðisaukaskattsskyldur eða ekki.

Viðfangsefni sýningarinnar eru risaeðlurnar og tímaskeið þeirra. Á sýningunni verða hreyfilíkön, sem lýsa hinum ýmsu gerðum risaeðla ásamt fræðandi upplýsingum um þær. Í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands verður gefin út sýningarskrá og gefnar verða út vinnubækur fyrir grunnskóla sem tengjast sýningarefninu í samvinnu við Námsgagnastofnun.

Það er álit ríkisskattstjóra að farandsýningu þessari megi líkja við náttúrugripasafn og þar af leiðir að aðgangseyrir að sýningunni er undanþeginn virðisaukaskatti samkvæmt 4. tl. 3. mgr. 2. gr. laga nr. 50/1988, um virðisaukaskatt.   Þykir ekki skipta máli að um er að ræða líkön af forsögulegum dýrum, enda liggur það í hlutarins eðli að ekki er unnt að gefa glögga mynd af útliti þeirra á annan hátt. Meginmarkmið með sýningunni er fólgið í að fræða sýningargesti um risaeðlur og það tímaskeið er þær voru uppi og verður ekki annað séð en hér sé á ferð menningarstarfsemi sem telja má mjög hliðstæða starfsemi náttúrugripasafna.

 

Virðingarfyllst,

f.h. ríkisskattstjóra

Margrét Steinarsdóttir