Dagsetning Tilvísun
21. ágúst 1996 748/96
Virðisaukaskattur – Hráefni til fiskvinnslu, sbr. reglugerð nr. 563/1989
Af gefnu tilefni vill ríkisskattstjóri koma á framfæri upplýsingum vaðandi afmörkun þess hvað sé “hráefni til fiskvinnslu” skv. 1. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 563/1989, um uppgjör, uppgjörstímabil og skil fiskvinnslufyrirtækja.
Samkvæmt 1. mgr. 4. gr. reglugerðarinnar geta fiskvinnslufyrirtæki fengið heimild skattstjóra til að skila sérstakri bráðabirgðaskýrslu sem tekur til innskatts af hráefni til fiskvinnslu. Svo virðist sem framkvæmd umrædds ákvæðis sé ekki einhlít, þ.e.a.s. í einhverjum tilvikum virðast gjaldendur hafa fengið að telja virðisaukaskatt af fiskflökum til innskatts á bráðabirgðaskýrslu. Ríkisskattstjóri ritaði bréf til allra skattstjóra dags. 30. janúar 1990 þar sem hugtakið “hráefni til fiskvinnslu” var skilgreint. Í framangreindu bréfi segir í 4. lið um hugtakið: ”Hér er einkum átt við ferskan fisk; óslægðan eða slægðan.”. Í bréfi ríkisskattstjóra dags. 4. febrúar 1991 (tilv. 229/91) er fjallað um sama efni og í lok þess bréfs segir: ”Ekki má færa á bráðabirgðaskýrslu innskatt vegna kaupa á fiski sem hefur verið saltaður eða unninn á annan hátt.”. Í Orðabók Menningarsjóðs er orðið hráefni skýrt sem “óunnið efni í náttúrunni”.
Samkvæmt framansögðu er það álit ríkisskattstjóra að fiskflök teljast ekki vera hráefni til fiskvinnslu í skilningi framangreindrar reglugerðar enda er sú vara annað hvort hálfunnin eða fullunnin.
Virðingarfyllst,
f.h. ríkisskattstjóra,
Vala Valtýsdóttir